Leikskrá
Mömmó er 729. frumsýning Leikfélags Reykjavíkur.
Frumsýningin 13. mars 2026 á Nýja sviði Borgarleikhússins
Sýningartími er tvær klukkustundir og fimmtán mínútur. Eitt hlé.
Ljósmyndir eru teknar á æfingum og eru því ekki endanleg heimild um sýninguna.
Notast var við gervigreind í vinnslu myndbanda í sýningunni.
Paula Vogel er eitt virtasta og vinsælasta núlifandi leikskáld Bandaríkjanna og um hana hefur verið sagt að hún safni viðurkenningum eins og svartur sófi safnar ryki. Hún er Íslendingum að góðu kunn fyrir verkið Ökutíma (e. How I Learned to Drive) sem sýnt var hér á landi árið 2009 en fyrir það hlaut Vogel Pulitzerverðlaunin, auk fjölda annarra verðlauna og viðurkenninga en verk hennar hafa verið sett upp í yfir þrjátíu löndum. Vogel hefur alla tíð starfað jöfnum höndum sem leikskáld og kennari en fjöldi verðlaunaleikskálda hafa numið við fótskör hennar, fyrst við Brown háskólann en síðar við Yale.
Ingunn Snædal er skáldkona og þýðandi. Hún útskrifaðist með kennsluréttindi frá KÍ 1996 og úr Íslenskum fræðum við Háskóla Íslands 2008. Ingunn hefur þýtt yfir hundrað skáldsögur og leikrit úr ensku, dönsku, norsku og sænsku og einnig starfað sem prófarkalesari og ritstjóri fyrir ýmsar bókaútgáfur og stofnanir. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenninga fyrir ljóðabækur sínar og má þar nefna Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, Fjöruverðlaunin og tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Af nýlegum verkefnum hennar hjá Borgarleikhúsinu má nefna Teprurnar og Óskaland.
Agnar Jón Egilsson útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands árið 1998. Hann er einnig með framhaldsgráðu í leiklist frá The Arts Educational School í London og meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Eftir útskrift lék Agnar hin ýmsu hlutverk á sviði hjá Leikfélagi Akureyrar, í Borgarleikhúsinu, með Dansleikhúsi með Ekka og Eggleikhúsinu ásamt því að stofna barna- og unglingaleikhúsið Leynileikhúsið sem Agnar rak frá arinu 2004 til 2025. Þá er hann einn stofnenda sviðlistahópsins Vesturports.
Agnar Jón hefur skrifað og leikstýrt fyrir leikhús, útvarp og sjónvarp og ber þar helst að nefna Með lykil um hálsinn og Rómeó og Júlíu með Vesturporti, Pakkið á móti fyrir LA, Glæp gegn diskóinu, Fúsa, aldur og fyrri störf í Borgarleikhúsinu en sú síðastnefnda var tilnefnd til fjögurra Grímuverðlauna, hlaut hvatningarverðlaun Grímunnar og Agnar Jón fékk verðlaun sem leikstjóri ársins. Frá árinu 2024 hefur Agnar starfað sem dósent og fagstjóri leikarabrautar LHÍ meðfram leikstjórastörfum og ýmsum félagsstörfum tengdum listum og menningu.
Guðný Hrund Sigurðardóttir er sjálfstætt starfandi leikmynda- og búningahönnuður sem vinnur á mörkum sviðslistar og myndlistar. Hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2006 og árið 2011 útskrifaðist hún frá leikmyndadeild Royal Welsh College of Music and Drama í Cardiff. Eftir útskrift hefur hún unnið að hinum ýmsu verkefnum í sviðslistum bæði á Íslandi sem og Bretlandi. Hún hefur tekið þátt í World Stage Design (2013). Af nýlegum verkefnum Guðnýjar í Borgarleikhúsinu má nefna Kjarval, Góða ferð inn í gömul sár og Hver er Laddi. Hún hefur verið tilnefnd til Grímuverðlauna fyrir bæði leikmynd og búninga og hlotið þau tvisvar.
Pálmi Jónsson er fastráðinn ljósahönnuður hjá Borgarleikhúsinu sem starfað hefur víða síðustu ár bæði sem sjálfstætt starfandi hönnuður og fyrir hinar ýmsu lista- og menningastofnanir. Þá hefur hann hannað sviðsgrafík fyrir viðburði á borð við Söngvakeppni sjónvarpssins og Eurovision. Af nýlegum verkefnum hans í Borgarleikhúsinu má nefna Fíasól gefst aldrei upp, Ungfrú Ísland, Þetta er Laddi, Moulin Rouge! Söngleikur og Hamlet.
Þorbjörn Steingrímsson lauk hljóðtækninámi á vegum Tækniskólans og Stúdíó Sýrlands árið 2016. Hann hóf störf sem hljóðmaður í Borgarleikhúsinu 2017 og var fastráðinn við hljóðdeild leikhússins árið 2019. Meðal nýlegra sýninga á sem Þorbjörn hefur unnið að eru Fíasól gefst aldrei upp, Óskaland, Fjallabak, Niflungahringurinn og Galdrakarlinn í Oz. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir hljóðmynd í sýngunni Macbeth ásamt Hrafnkatli Flóka Kaktus.
Alex Leó Kristinsson hóf störf við ljósadeild Borgarleikhússins árið 2023. Síðan þá hefur hann unnið við fjöldan allan af sýningum sem ljósamaður auk þess að forrita lýsingu fyrir sýningar á borð við Jól á náttfötunum og sýningu Íslenska dansflokksins While in Battle I am Free, never to free to rest. Þá hefur hann unnið töluvert við myndbandavinnslu, til dæmis gert vídeó fyrir Leiklistarskóla Borgarleikhússins, sýninguna Fjallabak og Niflungahringinn.
Yfirumsjón leikgerva: Guðbjörg Ívarsdóttir, Tinna Ingimarsdóttir
Ráðgjöf við sviðshreyfingar: Cameron Corbett
Sýningarstjórn: Christopher Astridge
Framleiðslustjórn: Halla Káradóttir
Tæknikeyrsla á sýningum: Jens Þórarinn Jónsson og Mikael Steinn Guðmundsson
Breytingar á sviðsgólfi: Hákon Örn Hákonarson og Alvin Máni Mölle
Sviðsmenn: Alvin Máni Möller, Högni Þór Þorsteinsson og Bergsteinn Pétursson
Leikmyndagerð: Ásdís Hanna Gunnhildar Guðnadóttir - Málari og smiður, Björgvin Már Pálsson - Smiður og málari, Finnur G. Olguson - Smiður, Gabríel Backman Waltersson - Smiður, Unnur Sif Geirdal - Smiður, Viðar Jónsson - Smiður og málari, Ævar Uggason - Smiður
Leikmunagerð: Björgvin Már Pálsson, Fanney Sizemore, Frosti Friðriksson, Högni Sigurþórsson, Sirrý Fjóla Þórarinsdóttir, Sólrún María Jóhannsdóttir
Búningagerð: Stefanía Adolfsdóttir, Maggý Dögg Emilsdóttir, Ingunn Lára Brynjólfsdóttir, Geirþrúður Einarsdóttir
Leikgervi: Harpa Finnsdóttir, Kristín Elísabet Kristínardóttir, Telma Erlendsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir
Ritstjórn: Maríanna Clara Lúthersdóttir
Útgefandi: Leikfélag Reykjavíkur
Leikhússtjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson
Ljósmyndun: Erik Tomasson
Sýningarréttur:
Frumsýnt á Broadway af Second Stage Theatre, New York, 2024.
Listrænn stjórnandi: Carole Rothman; starfandi framkvæmdastjóri: Lisa Lawer Post.
Upphaflega skrifað eftir pöntun frá Center Theatre Group, listrænn stjórnandi Michael Ritchie, Stephen Rountree framkvæmdastjóri, og Second Stage Theatre, listrænn stjórnandi Carole Rothman, framkvæmdastjóri Casey Reitz.
Sýnt með sérstöku samkomulagi við Nordiska ApS, Kaupmannahöfn – www.nordiska.dk
Margrét Pála Ólafsdóttir
Jóhanna Vala Höskuldsdóttir


Maríanna Clara Lúthersdóttir tók saman.
Paula Vogel er eitt virtasta og vinsælasta núlifandi leikskáld Bandaríkjanna og um hana hefur verið sagt að hún safni viðurkenningum eins og svartur sófi safnar ryki. Mömmó, eða Motherplay eins og það nefnist á frummálinu, er nýjasta verk hennar og var frumsýnt árið 2024 við fögnuð gagnrýnenda jafnt sem áhorfenda og sló í gegn á Broadway. Hún er Íslendingum að góðu kunn fyrir verkið Ökutíma (e. How I Learned to Drive) sem sýnt var hér á landi árið 2009 en fyrir það hlaut Vogel Pulitzerverðlaunin, auk fjölda annarra verðlauna og viðurkenninga en verk hennar hafa verið sett upp í yfir þrjátíu löndum.
Vogel er fædd í Washington-borg árið 1951 og gekk menntaveginn en hún útskrifaðist með meistaragráðu frá Cornell háskólanum árið 1976 og varð doktor frá sama skóla 2016.
Tengsl Vogel við háskólasamfélagið hafa alltaf verið mikil en hún hefur ætíð starfað jöfnum höndum sem leikskáld og kennari, fyrst við Brown háskólann en svo við Yale og fjöldi verðlaunaleikskálda hafa numið við fótskör hennar. Má þar nefna Brynhildi Guðjónsdóttur, Söruh Ruhl, Lynn Nottage, Nilo Cruz og Quiara Alegría Hudes en sú síðastnefnda segir Vogel hafa sagt á fyrsta degi kennslu að þegar dyr opnist í lífi þínu eigir þú alltaf að halda þeim opnum svo alla vega ein önnur manneskja komist í gegn. Eftir þessu hefur Vogel sjálf lifað og þykir einstaklega góður kennari sem leggur mikið á sig til að nemendur hennar nái langt. Það segir mögulega meira en mörg orð um tengsl Vogel við nemendur sína að hún er með réttindi til að gefa fólk saman og hefur nýtt þau réttindi til að gifta fjölmarga fyrrum nemendur og talar um að það sem sérstakt áhugamál. Verk Vogel hafa eins og áður sagði verið sett upp víða um heim en ekki síst í Bandaríkjunum. Hún hefur unnið mikið með The Vineyard leikhúsinu í New York og stofnaði leikhúsið til leikskáldaverðlauna í hennar nafni: The Paula Vogel Award for playwrights en að auki veitir The American College Theatre Festival árlega Paulu Vogel verðlaunin.
Hið margverðlaunaða verk Ökutímar fjallaði um viðkvæm málefni en þar eru kynferðisleg misnotkun og sifjaspell í brennidepli. Í Indecent, sem Vogel vann með leikstjóra verksins Rebeccu Taichman, tekur hún svo fyrir leikritið God of Vengeance eftir Sholem Asch. Verkið, frá árinu 1923, var gríðarlega umdeilt á sínum tíma – ekki síst fyrir þær sakir að það þótti fara óblíðum höndum um gyðinga, þrátt fyrir að vera skrifað af gyðingi og það á vægast viðsjárverðum tímum. Fyrir Vogel, hvers faðir var gyðingur en móðirin rómönsk-kaþólsk, var það þó einmitt það sem heillaði. Henni þótti Sholem Asch sýna mikið hugrekki í skrifum sínum sem sýndu fram á að gyðingar væru hvorki betri né verri en annað fólk og úr röðum þeirra eins og allra annarra trúarbragða kæmu tækifærissinnar sem svífast einskins. Vogel lét sjálf hafa eftir sér í blaðaviðtali að þau leikrit og leikskáld sem heilluðu hana væru þau sem hikuðu ekki við að tækla viðkvæm og flókin málefni eins og kynþáttafordóma, kvenhatur og aðra fordóma, með öðrum orðum, málefni sem hafa mátt til að særa.
Um Mömmó hefur Vogel sagt að verkið hafi verið 40 ár í vinnslu en það er sjálfsævisögulegt og fjallar í grunninn um flókið samband hennar við móður sína og bróður sem lést úr alnæmi árið 1988. Innri tími Mömmó spannar áratugi en verkið hefst árið 1964 og fjallar um róstursama tíma í bandarísku samfélagi og raunar heiminum yfirhöfuð en á sama tíma talar það skuggalega inn í nútímann og þá óhugnanlegu árásir hægri afla á minnihlutahópa sem nú eiga sér stað, ekki síst í Bandaríkjunum. Vogel hefur talað um að verkið sé ákveðinn virðingarvottur við fjölmörg leikrit þar sem leikskáld gera upp við móðurímyndir og nefnir þar sérstaklega Glerdýrin (e. The Glass Menagerie) eftir Tennessee Williams. Vogel og Carl, bróðir hennar, gjörþekktu verk Williams og vitnuðu gjarnan í það yfir kvöldmatnum sem unglingar, tilvitnanirnar urðu eins og prívat grín á milli systkinanna. Vogel segist með verki sínu varpa fram spurningunni hvort og hvernig slík uppgjör verði öðruvísi þegar þau komi úr penna konu. Kannski má þar líka finna tengingu við titilinn Motherplay, unga fólkið í verkinu er að fikra sig áfram í heiminum, þau prófa sig áfram í hlutverkum fullorðna fólksins og þau eru foreldrar hvors annars þegar móðirin bregst – en um leið er þetta verk um móðurina – uppgjör við hana – gagnrýnið vissulega en þó ekki án skilnings. Eins og önnur verk Vogel tekst Mömmó á við erfiða atburði og tilfinningar af hlýju og húmor. Hún hefur einstakt lag á að fjalla um breyskar persónur án þess að dæma þær og vekur áhorfandann sífellt til umhugsunar um hversu margbrotin manneskjan er.
Myndir úr sýningunni
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.