Að­al­heið­ur Ólafs­dótt­ir

Kennari

Heiða Ólafsdóttir starfar sem söngkona og leikkona við hin fjölbreyttustu tilefni og verkefni. Hún hefur unnið sem söngkennari frá árinu 2005, eða í 20 ár. Hún er með 5. Stig í klassískum söng frá Söngskólanum í Reykjavík ásamt eins árs masterclass frá Complete Vocal Institute í Danmörku. Leiðin lá svo til New York þar sem Heiða lærði leiklist og söng og bætti nýrri tækni við í söng bankann en Heiða útskrifaðist frá Circle in the square theater school sem leikkona á söngleikjabraut árið 2009. Söngverkefnin eru óteljandi og fjölbreytt, hún hefur leikið í allskonar söngleikjum og í sjónvarpsþáttum ásamt því að talsetja barnaefni fyrir sjónvarp og kvikmyndahús. Hún hefur einnig gefið út tvær sólóplötur, árið 2005 og 2019 og starfaði sem útvarpskona á Rás 2 um 10 ára skeið.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo