
Agnar Jón Egilsson útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands árið 1998. Hann er einnig með framhaldsgráðu í leiklist frá The Arts Educational Schools í London og Meistaragráðu í Menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Eftir ústkrift lék Agnar hin ýmsu hlutverk á sviði hjá Leikfélagi Akureyrar, í Borgarleikhúsinu með Dansleikhúsi með Ekka og Eggleikhúsinu ásamt því að stofna Barna og unglingaleikhúsið Leynileikhúsið sem Agnar rak frá arinu 2004 til 2025. Þá er hann einn stofnanda sviðlistahópsins Vesturports. Agnar Jón hefur skrifað og leikstýrt fyrir leikhús, útvarp og sjónvarp og ber þar helst að nefna Með lykil um hálsinn og Rómeó og Júlíu með Vesturporti, Pakkið á móti fyrir LA, Glæp gegn diskóinu, Fúsa, aldur og fyrri störf í Borgarleikhúsinu en sú síðastnefnda var tilnefnd til fjögurra Grímuverðlauna, hlaut hvatningarverðlaun Grímunnar og Agnar Jón fékk verðlaun sem leikstjóri ársins. Frá árinu 2024 hefur Agnar starfað sem dósent og fagstjóri leikarabrautar LHÍ meðfram leikstjórastörfum og ýmsum félagsstörfum tengdum listum og menningu. Agnar Jón reynir eftir bestu getu að lifa eftir kjörorðunum „leikgleðin er móðir allra dyggða“. Það gengur almennt tillölulega vel að hans eigin sögn.
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.