Bjarni Thor Krist­ins­son - syng­ur hlut­verk Barto­los þann 14.02.25

Bartolo

Bjarni Thor Kristinsson er hópi þeirra íslensku óperusöngvara sem náð hefur hvað lengst á erlendri grund. Hann hóf söngnám við tónlistarskólann í Njarðvík hjá Ragnheiði Guðmundsdóttur og stundaði það síðan með hléum áfram í Tónskóla Sigursveins og Söngskólanum í Reykjavík. Haustið 1994 hélt Bjarni til frekara náms við óperudeild Tónlistarháskólans í Vín og naut þar leiðsagnar Helene Karusso og Curt Malm. Vorið 1997 var Bjarni síðan ráðinn sem aðalbassasöngvari Þjóðaróperunnar þar í borg. Þar var hann fastráðinn til þriggja ára og að þeim tíma liðnum sneri hann sér einungis að lausamennsku. Meðal helstu óperuhlutverka Bjarna má nefna: Barón Ochs í Rósariddaranum, Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu, Pímen í Boris Godunow, Rocco í Fidelio, John Falstaff í Kátu konunum frá Windsor, van Bett í Zar und Zimmermann, að ógleymdum ýmsum hlutverkum í óperum Wagners: Wotan í Rínargullinu, Pogner í Meistarasöngvurunum, Daland í Hollendingnum fljúgandi, Hinrik konung í Lohengrin, Gurnemanz í Parsifal og risanum Fáfni í Niflungahringnum. Eftir að Bjarni gerðist lausamaður í söng hefur hann verið fastur gestur í Ríkisóperunni í Berlín auk þess að koma fram í óperuhúsum í Chicago, París, Amstedam, Stokkhólmi, Tókýó, Peking, Feneyjum, Verona, Flórenz, Napólí, Palermo, Róm, Lissabon, Barcelona, Hamborg, Dresden, München, Köln, Karlsruhe og Dortmund svo eitthvað sé nefnt. Bjarni söng hlutverk Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu hjá Íslensku óperunni haustið 2006 og fékk Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin, sem söngvari ársins fyrir hlutverkið. Þá tók hann þátt í flutningi á verkinu Edda 1 eftir Jón Leifs með Sinfóníuhljómsveit Íslands haustið 2006 og söng einnig með hljómsveitinni við opnun tónlistarhússins Hörpu.

Á undanförnum árum hefur Bjarni Thor einnig haslað sé völl sem leikstjóri. Meðal verka sem hann hefur leikstýrt er Viðburðastjórinn eftir Mozart í Iðnó, Þrymskviða eftir Jón Ásgeirsson í Hörpu, Fidelío eftir Beethoven á Óperudögum í Hörpu, Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Gamla bíó og Cosi fan tutte eftir Mozart í uppfærslu Kammeróperunnar í Iðnó og síðar Gamla bíó. Þá hefur Bjarni þýtt og staðfært óperurnar Viðburðastjórinn (Der Schauspieldirektor), Cosi fan tutte og Hans og Grétu.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo