Bjarni Snæ­björns­son

Leikstjóri

Bjarni Snæbjörnsson útskrifaðist með BFA-gráðu sem leikari frá Listaháskóla Íslands árið 2007 og síðan þá hefur hann tekið þátt í fjölda leikverka hjá sjálfstæðum leikhópum og í öllum stofnanaleikhúsum landsins, þá helst Þjóðleikhúsinu og með leikhópnum Stertabendu. Ferill hans einkennist af fjölbreyttum hlutverkum sem ná yfir sígild verk, ný íslensk leikrit og söngleiki eins og t.d. Jesus Christ Superstar, Vesalingana, Stertabendu, Framúrskarandi vinkonu, Meistarann og Margarítu, Slá í gegn, Kardemommubæinn, Frost og Skammarþríhyrninginn.

Hann var einn af höfundum og framleiðendum einleiksins Góðan daginn, faggi, sem sýnt var í tvö ár, fór í tvö leikferðalög um landið og hlaut Bjarni tilnefningu til Grímuverðlaunanna sem söngvari ársins árið 2022. Hann er jafnframt höfundur bókarinnar Mennska, sem hlaut Storytel-verðlaunin fyrir hljóðbók ársins árið 2026.

Bjarni hefur einnig komið að ýmsum tónlistarverkefnum og verið einn af framleiðendum og flytjendum tónleikaraðanna Ef lífið væri söngleikur og Söngleikjastælar, sem báðar eru helgaðar heimi söngleikjanna.

Samhliða sviðsstörfum hefur Bjarni starfað við kvikmyndir og sjónvarp og komið fram í fjölmörgum þáttum, kvikmyndum og auglýsingum. Hann starfar nú sem sjálfstæður sviðslistamaður, höfundur, kennari og blómabúðareigandi.

Nánari upplýsingar um störf hans í sviðslistum má finna á www.bjarnisnae.com.

-

Bjarni Snæbjörnsson graduated with a BFA in Acting from the Iceland University of the Arts in 2007. Since then, he has appeared in numerous productions with independent theatre companies and at all of Iceland’s major institutional theatres, most notably the National Theatre of Iceland and the theatre collective Perplex Theatre (Stertabenda).

His career has been marked by a wide range of roles spanning classical works, new Icelandic plays, and musicals, including Jesus Christ Superstar, Les Misérables, Perplex, My Brilljant Friend, The Master and Margarita, Frozen, and Triangle of Shame.

Bjarni was one of the writers and producers of the solo show Good Morning, Faggi, presented by Stertabenda in collaboration with the National Theatre of Iceland. The production ran for two years and toured the country twice, earning him a nomination for Singer of the Year at the Icelandic Performing Arts Awards in 2022.

He is also the author of Mennska (Humanity), which received the 2026 Storytel Audiobook of the Year Award.

In addition to his theatre work, Bjarni has been involved in a variety of musical projects and is one of the producers and performers behind the concert series If Life Were a Musical and Musical Styles, both celebrating the world of musical theatre.

Alongside his stage career, Bjarni has worked extensively in film and television, appearing in numerous series, feature films, and commercials. He currently works as a freelance performing artist, writer, teacher, and owner of a flower shop.

For a full résumé and further information about his work in the performing arts, please visit www.bjarnisnae.com.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo