
Tenórinn Eggert Reginn Kjartansson nam söng við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðar í Vínarborg, þar sem hann tók þátt í fjölmörgum óperu- og óperettuuppfærslum. Hann hefur sungið tenórsóló í verkum Händels, Bachs og Beethovens og komið fram á sviðum í Austurríki, Þýskalandi og á Íslandi.
Eggert er einn af stofnendum Kammeróperunnar og hefur þar farið með fjölbreytt hlutverk, meðal annars Ferrando í Così fan tutte, Nornina í Hans og Grétu, Basilio og Don Curzio í Brúðkaupi Fígarós og Don José í Carmen. Hann hlaut Grímutilnefningu sem söngvari ársins fyrir túlkun sína á Norninni og söng árið 2025 í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikaröðinni Klassíkin okkar.
-
Tenor Eggert Reginn Kjartansson studied voice at the Reykjavík College of Music and later in Vienna, where he participated in numerous opera and operetta productions. He has performed tenor solos in works by Händel, Bach, and Beethoven, and has appeared on stages in Austria, Germany, and Iceland.
Eggert is one of the founders of Kammeróperan, where he has performed a wide range of roles, including Ferrando in Così fan tutte, the Witch in Hansel and Gretel, Basilio and Don Curzio in The Marriage of Figaro, and Don José in Carmen. He received a Gríman Award nomination as Singer of the Year for his portrayal of the Witch and made his debut with the Iceland Symphony Orchestra in 2025 as part of the concert series Klassíkin okkar.
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.