Eg­ill Heið­ar Ant­on Páls­son

Leikhússtjóri
borgarleikhus@borgarleikhus.is

Egill Heiðar Anton Pálsson býr að víðtækri reynslu úr sviðslistum á innlendum sem erlendum vettvangi. Hann hefur 25 ára reynslu sem leikstjóri, hefur leikstýrt yfir 100 sýningum og starfað á öllum Norðurlöndunum, í Þýskalandi og Ástralíu.

Egill Heiðar hefur sett upp og skrifað verk fyrir Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn, Borgarleikhúsið í Stokkhólmi, í Uppsölum og Gautaborg, Schaubühne leikhúsið í Berlín og National Teater Mannheim, svo nokkur dæmi séu nefnd. Jafnframt setti hann upp sýningarnar Hver er hræddur við Virginiu Woolf og Himnaríki og helvíti í Borgarleikhúsinu sem báðar unnu til Grímuverðlauna.

Egill útskrifaðist með gráðu í leiklist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1999 og lauk námi í leikstjórn frá Danska Leiklistarháskólanum árið 2002. Hann hefur starfað sem prófessor og deildarforseti við Leiklistarháskólann Ernst Busch í Berlín, verið fastur kennari við Danska leiklistarháskólann sem og Listaháskóla Íslands þar sem hann var jafnframt fagstjóri leikaranáms. Frá árinu 2020 hefur hann starfað sem leikhússtjóri Hålogaland leikhússins í Tromsø í Noregi.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo