
Inga Steinunn er 27 ára sviðshöfundur og grínisti. Hún sýndi vikulega með spunahópnum Improv Ísland frá 2019–2025, ásamt því að kenna námskeið á þeirra vegum. Einnig hefur hún kennt börnum spuna í Hjallastefnunni, leikstýrt menntaskólaleikritum og kennt krökkum leiklist víða.
Frumraun hennar í uppistandi var í Tjarnarbíói árið 2023. Í kjölfarið sýndi hún uppistandssýninguna Vangadans í Þjóðleikhúskjallaranum og hefur verið hluti af uppistandskvöldum sem kallast Smá uppistand. Nýverið frumsýndi hún leiksýninguna Leikritið í Afturámóti, sem hún skrifaði og flutti.
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.