
Íris Björk er lýrískur sópran sem hefur vakið athygli bæði á Íslandi og í Noregi. Hún nam við Listaháskóla Íslands, Óperuháskólann í Stokkhólmi og lauk mastersnámi frá Listaháskólanum í Osló árið 2023. Í kjölfarið var hún ráðin við óperustúdíó Norsku Þjóðaróperunnar, þar sem hún hefur síðan komið fram í fjölmörgum uppfærslum, meðal annars í nýju óperunni Fønix, Töfraflautunni og Elektru.
Íris Björk hefur sérstakan áhuga á nútímaóperum og frásögnum sem hafa djúpstæð áhrif á áhorfendur. Hún er stofnandi óperukompanísins hinÓperunnar, sem vinnur að auknum sýnileika hinsegin sögupersóna og fjölbreytileika í óperulistinni. Markmið hennar er að skapa óperulist sem endurspeglar samfélagið okkar eins og það er.
-
Íris Björk is a lyric soprano who has proved herself as an opera and concert singer in both Iceland and Norway. She studied at the Iceland University of the Arts, the Stockholm University College of Opera, and completed her Master's degree at the Oslo National Academy of the Arts in 2023. Following her graduation, she was engaged by the Norwegian National Opera's Opera Studio, where she has since appeared in numerous productions, including the new opera Fønix, The Magic Flute, and Elektra.
Íris Björk has a particular interest in contemporary opera and in stories that have a profound impact on audiences. She is the founder of the opera company hinÓperan, which works to increase the visibility of queer characters and promote diversity within the operatic arts. Her goal is to create opera that reflects society as it truly is.
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.