
Jóakim hefur starfað sem sirkuslistamaður í rúman áratug og hefur skemmt þúsundum áhorfenda á öllum aldri sem akróbati og trúður. Jóakim hefur komið fram um allt land og víða um Evrópu með hópum eins og Sirkuslistafélaginu Hringleik, Sirkus Íslands og Captain Sugar and the Monkey Puppets.
Jóakim lærði sirkuslistir við Codarts University for the Arts í Rotterdam í Hollandi, þar sem hann útskrifaðist með BA-gráðu í sirkuslistum árið 2017. Hann er sérhæfður í kínverskri súlu (Chinese pole) og akróbatík, en hefur mikinn áhuga á að miðla þekkingu sinni og hefur kennt börnum, ungmennum og fullorðnum í mörg ár.
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.