Svikasögur

Árið er 1984

Magnús Þór Þorbergsson tók saman

Árið 1984 bjuggu 240 þúsund manns á Íslandi og tæp 90 þúsund þeirra í Reykjavík. Vigdís Finnbogadóttir var endurkjörin forseti án mótframboðs, Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra og Davíð Oddsson borgarstjóri, verðbólga var 30% og þriðjungur Íslendinga 15-79 ára reykti daglega. Derrick, Dave Allen og Dallas voru vinsælustu þættirnir í sjónvarpinu, ekkert sjónvarp var á fimmtudögum, en vídeóleigur voru á öðru hverju götuhorni. Notuð skellinaðra kostaði á bilinu 10-12 þúsund, um 150-180 þúsund á núvirði, og vinsælustu fermingargjafirnar voru Pioneer hljómtækjasamstæða, Sharp ferðakassettutæki, Ajungilak svefnpoki og Sinclair Spectrum 48k tölva.

Kvótakerfið var sett á, áratugalöngu banni við hundhaldi í Reykjavík var aflétt og kosningaaldur var lækkaður úr 20 árum í 18 ár, þó sjálfræðisaldur væri 16 ár. Reykjavíkurmaraþonið var haldið í fyrsta sinn, þar sem 214 hlauparar tóku þátt, og Bjarni Friðriksson júdókappi hlaut bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í Los Angeles. Hann hreppti samt ekki titilinn íþróttamaður ársins, sá heiður féll í skaut knattspyrnugoðsögninni Ásgeiri Sigurvinssyni, leikmanni Stuttgart – í annað sinn.

Ringo Starr var heiðursgestur á útihátíð í Atlavík um verslunarmannahelgina þar sem hann tók lagið með Stuðmönnum og afhenti hljómsveitinni Fásinnu frá Egilsstöðum fyrstu verðlaun í árlegri hljómsveitarkeppni hátíðarinnar. Hinir sænsku Herreys-bræður sigruðu Eurovision með laginu Diggi-Loo Diggi-Ley, Bruce Springsteen gaf út Born in the USA og Prince sendi frá sér Purple Rain, en á Íslandi börðust Wham! og Duran Duran um vinsældir unglinga.

Allsherjarverkfall BSRB stóð í nær mánuð haustið 1984 og hafði víðtæk áhrif á samfélagið. Strætisvagnar hættu að keyra, skólastarf lá niðri og sjónvarpsútsendingar stöðvuðust. Ekki var hægt að afferma skip og undir lok verkfallsins var farið að bera á vöruskorti í landinu, sérstaklega á tóbaki… og klósettpappír.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo