Nýja svið

1984

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Verð

Stóri bróðir fylgist með þér

Algert eftirlit er markmiðið í eftirlitssamfélagi Orwells í skáldsögunni 1984. Winston er starfsmaður Sannleiksráðs en hann sér um að breyta upplýsingum og staðreyndum í blöðum og kennslubókum eftir skipunum Flokksins. Svonefndum hliðstæðum staðreyndum eða öllu heldur skaðreyndum er óspart plantað til að draga úr gagnrýni og sjálfstæðri hugsun almennings. Winston skrifar leynilega dagbók sem einskonar heimild fyrir framtíðina. Skilaboð til komandi kynslóða og uppreisnaráskorun. Eða bara huglæg lýsing á heimi þar sem stríð er friður, þrældómur er frelsi og fáfræði er styrkur.

Í magnaðri leikgerð skáldsögunnar eru áhorfendur dregnir inn í þetta framtíðarsamfélag. Ágengum spurningum er varpað fram: Hvernig vitum við að veröld okkar er raunveruleg? Hvað er sannleikur og hvað sannlíki í yfirþyrmandi eftirlitssamfélagi nútímans þar sem hvert okkar spor er rakið af stórfyrirtækjum á netinu, með símtækjum, öryggismyndavélum og rafrænum skilríkjum? Hver er staða einstaklingsins í þessum ósköpum og yfirgangi og hvernig getur hann varðveitt sjálfan sig?

George Orwell samdi þessa dystópíu í skugga síðari heimsstyrjaldarinnar. Hún er fyrir löngu orðin hluti af sígildum bókmenntum og án efa ein merkasta saga síðari tíma.

Frumsýning 15. september 2017 á Nýja sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Erlen Ísabella Einarsdóttir

Hannes Óli Ágústsson

Haraldur Ari Stefánsson

Jóhann Sigurðarson

Valur Freyr Einarsson

Þorvaldur Davíð Kristjánsson

Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Þuríður Blær Jóhannesdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundur

George Orwell

Leikgerð

Duncan Macmillan / Robert Icke

Þýðing

Eiríkur Örn Norðdahl

Leikstjórn

Bergur Þór Ingólfsson

Leikmynd

Sigríður Sunna Reynisdóttir

Búningar

Elísabet Alma Svendsen / Sigríður Sunna Reynisdóttir

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Leikgervi

Margrét Benediktsdóttir

Tónlist / hljóð

Garðar Borgþórsson

Myndband

Ingi Bekk

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo