Stóra svið

Al­búm

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Verð

8 kr.

Næstu sýningar

Frumsýning19. febrúar kl. 20:00
2. sýning28. febrúar kl. 20:00
3. sýning04. mars kl. 20:00
4. sýning14. mars kl. 20:00
Allar sýningar

Al­búm

Albúm eru meira en bara safn laga. Þau eru heimar, menningarfyrirbæri, frásagnabogar og landslag tilfinninga. Tímahylki. Töfrar. Þau eru persónuleg en um leið pólitísk. Þegar albúm er gefið út fjölgar það sér ósjálfrátt í gegnum hlustendur sína. Löngu eftir útgáfu halda albúmin áfram að móta það hvernig við skiljum okkur sjálf og heiminn í kringum okkur. Þau verða að hljóðrásum fyrstu ástarinnar og ástarsorganna, uppreisnanna, harmsinsog vonarinnar um framtíðina.

Nýjasta verk þeirra Alexanders Roberts og Ásrúnar Magnúsdóttur ber titilinn Albúm. Þar verða áhrifarík albúm sem eru samofin þjóðarsálinni, sviðsett í heild sinni - frá upphafi til enda.

Í kjarna verksins er spurt: Hvað er albúm? Og að hve miklu leyti tilheyrir það þeim sem hafa hlustað á það, lifað með því, rifist við það, dansað við það, grátið með því og borið það með sér í gegnum lífið?

Fyrir hverja sýningu kemur saman húsband verksins, dansarar frá Íslenska dansflokknum og hópur hlustenda víðs vegar að. Saman reyna þau að stíga inn í heim albúmsins: hlusta af athygli, flytja það, dansa við það, spyrjagagnrýninna spurninga og kanna hvað það hefur að segja um samtímann.

Albúm er að hluta til dansverk, að hluta til tónleikar, að hluta til hlustunarpartý, - það er sameiginlegt ferðalag inn í heim albúmsins. Verkið rannsakar hvernig tónlist leiðir fólk saman og veltir því fyrir sér hvers konar albúm, og hvers konar hlustun, heimurinn þarfnast í dag.

Aðstandendur:

Höfundar: Alexander Roberts og Ásrún Magnúsdóttir.

Húsbandið: Felix Urbina Alejandre, Marta Ákadóttir og Sólrún Kjartansdóttir.

Hönnun og útlit: Guðný Hrund Sigurðardóttir.

Meðframleiðandi: Murmur framleiðslufyrirtæki.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo