Borgarleikhúsið

Allt sem er frábært

  • Litla sviðið
  • 1 klst. og 30 mín., ekkert hlé
  • Verð: 7.600 kr.
  • Væntanleg

SBH. Mbl

  • Miðasala er ekki hafin á sýninguna Allt sem er frábært. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
  • Kaupa miða Panta mat

Allt sem er frábært fær fólk til að hlæja þar til það skilur loks hvers vegna það grætur! Hvernig bregst ungur dóttir við myrkum hugsunum móður sinnar?

Allt sem er frábært

Gleðileikur um depurð

Allt sem er frábært fær fólk til að hlæja þar til það skilur loks hvers vegna það grætur! Hvernig bregst ung dóttir við myrkum hugsunum móður sinnar? Hún býr auðvitað til lista yfir allt sem er frábært í heiminum og gerir lífið þess virði að lifa því: Tuttugu árum síðar er listi ungu stúlkunnar í fullu gildi og hefur lengst svo um munar - í ævilanga áminningu um það að gleði er ekki síst að finna í hlutum sem virðast léttvægir. 

Vala Kristín Eiríksdóttir stendur ein á sviðinu í hlutverki manneskju sem gerir atlögu að depurðinni og lífsleiðanum, með aðstoð áhorfenda og listann góða að vopni, og segir í leiðinni hrífandi sögu af ást, sorg og ís með dýfu. Höfundur er Duncan Macmillan, sá hinn sami og skrifaði verkin Andaðu og Fólk, staðir og hlutir sem sló í gegn í Borgarleikhúsinu fyrir nokkru síðan. Þetta einfalda en snjalla verk hefur verið sett á svið víða um heim og hlotið gríðarlega góðar viðtökur gagnrýnenda jafnt sem áhorfenda og birtist hér í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur. 


    Gagnrýni

    Ofarlega á listann minn yfir það sem gerir lífið þess að virði að lifa því er að hafa tekið þátt í sýningunni „ Allt sem er frábært“ í Borgarleikhúsinu.

    MK. Víðsjá.

    Hugnæm sýning um grafalvarlegt málefni.

    SA. Fréttablaðið.


    Leikarar

    • Vala Kristín EiríksdóttirVala Kristín Eiríksdóttir

    Listrænir stjórnendur

    • Höfundur

      Duncan Macmillan
    • Þýðing

      Kristín Eiríksdóttir
    • Leikstjórn

      Ólafur Egill Egilsson
    • Leikmynd og búningar

      Brynja Björnsdóttir
    • Lýsing

      Þórður Orri Pétursson
    • Hljóð

      Baldvin Þór Magnússon
    • Aðstoðarleikstjórn

      Hlynur Páll Pálsson