Nýja svið

At

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Verð

Tvö störf. Þrír umsækjendur. Andrúmsloftið er rafmagnað. Vinnufélagar bíða eftir mikilvægu starfsviðtali og fjandinn er laus. Fals og lygi svífa yfir vötnunum. Persónurnar leggja sig fram um að atast hver í annarri af grimmilegu miskunnarleysi. Staðan er fullkomlega ótrygg og áhorfendur komast ekki hjá því að sogast inn í keppnina. Samviskubitið gerir sig líklegt til að naga okkur inn að beini. Leikskáldið bendir á nístingskaldan sannleikann um okkur sjálf. Enginn vill vera í hlutverki þess sem tapar.

Mike Bartlett (f. 1980) er eitt helsta og afkastamesta leikskáld Breta um þessar mundir. Hann hefur sent frá sér fjöldamörg verk á undanförnum árum, Bull var frumsýnt 2013 og endursýnt í Young Vic leikhúsinu í London 2015 þar sem það hlaut frábærar viðtökur og var sýnt fyrir fullu húsi í margar vikur. At hlaut Bresku leiklistarverðlaunin árið 2013 sem besta nýja leikritið.

Frumsýning 18. september 2015 á Nýja sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Eysteinn Sigurðarson

Vala Kristín Eiríksdóttir

Valur Freyr Einarsson

Þorvaldur Davíð Kristjánsson

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Mike Bartlett

Þýðing

Kristín Eiríksdóttir

Leikstjóri

Kristín Eysteinsdóttir

Leikmynd / búningar

Gretar Reynisson

Lýsing

Þórður Orri Pétursson

Tónlist

Hallur Ingólfsson

Hljóð

Ólafur Örn Thoroddsen

Leikgervi

Árdís Bjarnþórsdóttir

Sýningarstjóri

Chris Astridge

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo