Beint í æð

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Verð

Hvað myndir þú gera ef þú værir háttsettur læknir við stærsta sjúkrahús höfuðborgarinnar á leiðinni að flytja fyrirlestur ársins á norrænni læknaráðstefnu, nokkuð sem gæti fært þér yfirlæknisstöðu, fálkaorðu og fleiri eftirsóknarverðar vegtyllur - þegar á vettvang mætir, án þess að gera boð á undan sér, illa fyrirkölluð fyrrum kærasta á besta aldri ásamt afleiðingunum af ástarfundum ykkar nákvæmlega 18 árum og 9 mánuðum áður? Er þetta ekki ávísun á ógnarklúður?

Jón Borgar, vellukkaður og velkvæntur tauga- sérfræðingur hefur séð það svart um sína daga. En dagleg glíma hans með skurðhnífinn, þar sem hársbreidd skilur jafnan milli lífs og dauða, reynist hreinasti barnaleikur í samanburði við það sem hann á í vændum.

Borgarleikhúsið hefur áður sýnt gamanleiki Ray Cooney við gríðarlegar vinsældir og met- aðsókn, Viltu finna milljón? og nú síðast Nei, ráðherra! sem gekk í tvö leikár á Stóra sviðinu. Gísli Rúnar íslenskaði og heimfærði bæði verkin við afbragðs viðtökur.

Frumsýning 31. október 2014 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Guðjón Davíð Karlsson

Halldór Gylfason

Hilmir Snær Guðnason

Hjörtur Jóhann Jónsson

Jóhanna Vigdís Arnardóttir

Maríanna Clara Lúthersdóttir

Sigurður Þór Óskarsson

Sigrún Edda Björnsdóttir

Valur Freyr Einarsson

Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Örn Árnason

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Ray Cooney

Leikstjóri

Halldóra Geirharðsdóttir

Íslensk heimfærsla

Gísli Rúnar Jónsson

Leikmynd / búningar

Helga I. Stefánsdóttir

Tónlist

Ólafur Björn Ólafsson

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Hljóð

Ólafur Örn Thoroddsen

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo