Þrír kúgaðir skrifstofumenn sólunda lífi sínu á sorglegustu skrifstofu veraldar undir vökulu auga siðblinds yfirmanns. Í hvert sinn sem hann lítur undan, nýta þeir tækifærið til að „blamma“: Að endurgera uppáhalds senurnar sínar úr hasarmyndum. Þegar yfirmaðurinn fer að „blamma“ með þeim færist fjör í leikinn og við tekur stórhættuleg saga sem leikin er á ógnarhraða og krefst ofurmannlegra átaka.
Þessi nýjasta sýning Kristjáns hefur slegið rækilega í gegn víða um heim, meðal annars hreif hún áhorfendur á Edinborgarhátíðinni í ágúst síðastliðnum. Sýningin hefur hlotið mikið lof og valdi dómnefnd hinna virtu Reumert-verðlauna hana sýningu ársins í Danmörku. Verkið var sýnt sex sinnum í Borgarleikhúsinu fyrir troðfullu húsi við mikinn fögnuð leikhúsgesta, hlaut einróma lof gagnrýnenda og sex Grímutilnefningar. Sýningin snýr aftur næsta vor vegna gríðarlegrar eftirspurnar.
Kristján Ingimarsson hefur þróað sitt eigið líkamstungumál sem samanstendur af látbragðsleik, gamanleik, fimleikum, trúðleik, dansi og leiklist. Ekkert hefðbundið tungumál þvælist því fyrir áhorfendum á sýningum Kristjáns. Tónlistin er áberandi og húmorinn er aldrei langt undan.
Frumsýning 3. apríl 2013 á Stóra sviði Borgarleikhússins.