Blá­skjár

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Verð

Fyrsta leikrit í heimi sem gerist í Kópavogi

Pabbi er loksins dauður. Systkinin Valter og Ella ætla sér flytja upp úr kjallaranum þar sem þau hafa kúldrast árum saman, en á efri hæðum hússins bjó faðir þeirra og upphaldsbarnið Eiríkur. Þau binda miklar vonir við flutningana því nú ættu draumar þeirra systkina um frægðarferil á sviði skvísubóka og ástarsamband við leigubílstjóra að geta ræst. En fyrst þarf að koma pabba gamla í gröfina og losa sig við uppáhaldsbarnið, helst fyrir fullt og allt. Valter og Ella eru fyrst og fremst Íslendingar sem mala um breytingar og betri tíð og reyna að endurnýta sig eftir undarlegustu leiðum.

Bláskjár er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi (skammt frá Hamraborg) til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitthvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina, ofbeldið og veikburða getu okkar til þess að segja hvert öðru satt – og svo auðvitað Bláskjá og sígaunana.

Tyrfingur Tyrfingsson (f. 1987) hefur fengist við leiklist svo lengi sem hann man eftir sér og hefur þar til 2012 fyrst og fremst einbeitt sér að performans listum. Hann nam „fræði og framkvæmd“ við leiklistardeild Listaháskóla Íslands og lauk þaðan BA-prófi vorið 2011, en stundaði síðan nám í leikritun við Goldsmiths, University of London. Á síðasta leikári sýndi Borgarleikhúsið leikrit Tyrfings, Skúrinn á sléttunni, einn þriggja einþáttunga ungra leikskálda í sýningunni NÚNA! Fyrir verk sín hlaut Tyrfingur tvöfalda tilnefningu til Grímunnar, íslensku sviðlistaverðlaunanna vorið 2013. Bláskjár er fyrsta leikrit hans í fullri lengd.

Samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Óskabarna ógæfunnar

Frumsýning 8. febrúar 2014 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Arndís Hrönn Egilsdóttir

Arnmundur Ernst Backman Björnsson

Hjörtur Jóhann Jónsson

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Tyrfingur Tyrfingsson

Leikstjórn

Vignir Rafn Valþórsson

Aðstoðarleikstjóri

Pétur Ármannsson

Leikmynd / búningar

Brynja Björnsdóttir

Tónlist

Högni Egilsson

Aðstoðarmaður leikstjóra

Viktoría Blöndal

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo