Brúðkaup Fígarós
- Nýja sviðið
- Verð: 9.900
- Væntanleg
Brúðkaup Fígarós
Ein ástsælasta ópera allra tíma
Kammeróperan í samstarfi við Borgarleikhúsið setur upp hina sívinsælu gamanóperu Brúðkaup Fígarós eftir Mozart í nýrri íslenskri þýðingu Bjarna Thors Kristinssonar.
Greifinn og greifynjan eru ungt og upprennandi athafnafólk sem hefur tekist hið ómögulega og byggt upp farsæla starfsemi í kringum vínrækt í Mosfellsbæ, en ekki er allt sem sýnist í þessari paradís. Þó að óperan sé í grunnin kómísk þá eru þar samt sterkir samfélagslegir þættir sem tala til okkar í dag og það er spennandi áskorun að yfirfæra þann hluta verksins yfir á nútímasamfélag. Í þessari útgáfu óperunnar láta starfsmenn vínræktuninnar óréttlæti og kynferðislega áreitni greifans ekki viðgangast og snúa á yfirmann sinn (með aðstoð greifynjunnar) til að sýna honum í tvo heimana.
Áhorfendur eru dregnir inn í heim óperunnar strax og þeir mæta í leikhúsið en áður en sýningin sjálf hefst býðst gestum að taka þátt í vínsmökkun sem greifinn stendur fyrir.
Verkið er styrkt af Sviðslistasjóði.
Leikarar
- Oddur Arnþór JónssonGreifinn
- Bryndís GuðjónsdóttirGreifynjan
- Jóna G KolbrúnardóttirSúsanna
- Unnsteinn ÁrnasonFígaró
- Kristín SveinsdóttirCherubino
- Hildigunnur EinarsdóttirMarcellina
- Jón Svavar JósefssonBartolo
- Eggert Reginn KjartanssonBasillio / Don Curzio
- Vera Hjördís MatsdóttirBarbarina
- Ragnar Pétur JóhannssonAntonio
Listrænir stjórnendur
Höfundur
Lorenzo Da PonteHöfundur tónlistar
Wolfgang Amadeus MozartLeikstjórn og þýðing
Bjarni Thor KristinssonTónlistarstjórn
Elena PostumiLeikmynd
Eva Björg HarðardóttirLýsing
Friðþjófur ÞorsteinssonBúningar
Andri UnnarssonAðstoðarleikstjórn
Snæfríður Sól GunnarsdóttirHljómsveit
Pétur Björnsson, 1. fiðla
Guðbjartur Hákonarson, 2. fiðla
Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla
Hrafnhildur M. Guðmundsdóttir, selló
Jacek Karwan, kontrabassi
Steinunn Vala Pálsdóttir, flauta
Matthías Nardeau, óbó
Baldvin Ingvar Tryggvason, klarinett
Bryndís Þórsdóttir, fagott
Emil Steindór Friðfinnsson, horn