Nýja svið

Dag­bók jazz­söngv­ar­ans

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Verð

Ástin, dauðinn, brostnir draumar ... og allur sá djass

Haraldur hefur að eigin sögn margoft naumlega sloppið við dauðann. En eftir símtal læknisins bendir allt til þess að hann sleppi ekki í þetta sinn. Það er ekki seinna vænna að gera upp sín mál, verða almennileg manneskja. Óvænt bréf úr fortíðinni verður til þess að hann tekur ákvörðun um að dusta rykið af djasssöngvaranum sem hefur legið í dvala í áratugi. „Nú geri ég hreint fyrir mínum dyrum.“ Stórhreingerning ævinnar er á næsta leiti. Nýja heimilishjálpin hefur aldrei lent í öðru eins.

Dagbók Jazzsöngvarans er saga um samhengi kynslóða. Hvernig sársauki einnar kynslóðar flyst yfir á þá næstu. Hvernig sársaukakeðjan slitnar ekki nema hún sé rofin. Þetta er saga um baráttu við ósýnilegt mein, um ást, missi, vináttu og ekki síst þakklæti.

Sýningin er sett upp af Common Nonsense í samstarfi við Borgarleikhúsið en það samstarf gat af sér Tengdó sem fékk Grímuna sem sýning ársins 2012 og sópaði til sín helstu verðlaunum hátíðarinnar það árið.

Frumsýning 11. apríl 2014 á Nýja sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Grettir Valsson

Kristbjörg Kjeld

Valur Freyr Einarsson

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Valur Freyr Einarsson

Leikstjórn

Jón Páll Eyjólfsson

Leikmynd / búningar

Ilmur Stefánsdóttir

Tónlist

Davíð Þór Jónsson

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Hljóð

Baldvin Magnússon

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo