Stóra svið

Dúkku­heim­ili

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Verð

Nóra er ein þekktasta kvenhetja leiklistarinnar. Hún býr á venjulegu heimili ásamt eiginmanni sínum Þorvaldi og þremur börnum. En Nóra á sér leyndarmál sem enginn má komast að, allra síst Þorvaldur. Í augum hans er álit samfélagsins á honum og fjölskyldu hans mikilvægara en allt annað. Komist upp um leyndarmálið gæti það á svipstundu rústað hamingju fjölskyldunnar. Nóra stendur frammi fyrir erfiðu vali: Að þrauka áfram í þrengslum dúkkuheimilisins eða rjúfa múrinn og yfirgefa eiginmann og börn. Dúkkuheimili, er stórbrotið leikverk sem allir núverandi og fyrrverandi makar ættu að sjá og ekki síður þeir sem hyggja á sambúð - eða hafna henni.

Henrik Ibsen skrifaði Dúkkuheimili árið 1879 og tryggði verkið honum ekki einungis heimsfrægð heldur stendur það enn í dag sem helsta verk leiklistarsögunnar sem flettir ofan af stórri lífslygi. Með glöggskyggni sinni og næmi fyrir mannlegum tilfinningum skoðar hann líf í hjónabandi, grundvöll þess og innihald.

Frumsýning 30. desember 2014 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Arndís Hrönn Egilsdóttir

Hilmir Snær Guðnason

Unnur Ösp Stefánsdóttir

Valur Freyr Einarsson

Þorsteinn Bachmann

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Henrik Ibsen

Þýðing / dramatúrgía

Hrafnhildur Hagalín

Leikstjórn

Harpa Arnardóttir

Leikmynd

Ilmur Stefánsdóttir

Búningar

Filippía Elísdóttir

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist

Margrét Kristín Blöndal

Hljóð

Garðar Borgþórsson

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo