Nýja svið

Ég dey

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Lengd

1:45 klst (með hléi)

Verð

Trúir þú á líf fyrir dauðann?

„Ég var orðin 50 ára þegar ég uppgötvaði að ég myndi á einhverjum tímapunkti deyja. Ég furðaði mig á því hvernig ég gat komist hjá því í svona langan tíma að horfast í augu við dauðann. Þessi sýning er unnin út frá þessari uppgötvun.”

Í sýningunni mun Charlotte skoða lífið frá sjónarhóli dauðans og skoða dauðann frá sjónarhóli lífsins. Hvers vegna forðumst við að ræða dauðann? Þarf hann að vera sorglegur og leiðinlegur? Hver segir að við deyjum í raun og veru? Og af hverju er svona erfitt að lifa lífinu lifandi? Charlotte mun ögra sjálfri sér og áhorfendum með því að framkvæma fimm hluti sem hún hefur aldrei áður gert á leiksviði, suma vegna þess að hún hefur ekki þorað því áður. „Ég geri þetta nú eða aldrei, það skiptir ekki máli hvernig þetta fer. Ég er hvort sem er að fara að deyja“.

Ég dey er þriðji einleikur Charlotte Bøving. Hinir fyrri eru Hin smyrjandi jómfrú 2002 og Þetta er lífið – og nu er kaffen klar 2010. Charlotte var tilnefnd til Grímunnar fyrir báðar sýningarnar.

Í samstarfi við Opið út.

Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneyti - Leiklistarráði.

Frumsýning 4. janúar 2019 á Nýja sviði Borgarleikhússins.

Listrænir stjórnendur

Höfundur / flytjandi

Charlotte Bøving

Leikstjórn

Benedikt Erlingsson

Leikmynd / búningar

Þórunn María Jónsdóttir

Tónlist

Gísli Galdur Þorgeirsson

Dramatúrg

Gréta Kristín Ómarsdóttir

Lýsing / hljóð

Garðar Borgþórsson

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo