Eit­ur

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Verð

Hvað áttu eftir stærsta missi lífs þíns?

Áfallið sem sprengdi hjónabandið eltir þau eins og skuggi. Hann fór til Frakklands og hóf nýtt líf. Hún var um kyrrt í húsinu þeirra og hefur reynt að aðlaga sig sorginni. Tíu árum eftir skilnað hittast þau aftur við óvæntar aðstæður. Fortíðin nagar og óuppgerðir hlutir líta dagsins ljós og sumum tilfinningum verður ekki lýst með orðum. Þau dansa á hárfínni línu afbrýðisemi, söknuðar, væntumþykju, biturðar og kraumandi ástríðna. Og í sameiningu þurfa þau nú að taka afdrifaríka ákvörðun.

Hilmir Snær og Nína Dögg takast á við kynngimögnuð hlutverk í margverðlaunuðu leikriti um sorgina í ástinni í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Eitur er hollenskt leikrit sem hefur sigurför um heiminn undanfarinn áratug og verið þýtt á yfir tuttugu tungumál. Leikskáldið Lot Vekemans skrifar af óvenjulegri skarpskyggni um sameiginleg örlög tveggja einstaklinga sem gera úrslitatilraun til að sættast við fortíðina.

Frumsýning 1. nóvember 2019 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Hilmir Snær Guðnason

Nína Dögg Filippusdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Lot Vekemans

Þýðing

Ragna Sigurðardóttir

Leikstjórn

Kristín Jóhannesdóttir

Leikmynd

Börkur Jónsson

Búningar

Þórunn María Jónsdóttir

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Leikgervi

Elín Sigríður Gísladóttir

Hljóð

Garðar Borgþórsson

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

jafnlaunavottun 2023-2026

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo