Litla svið

Ekki hætta að anda

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Fjórar konur hittast til að semja minningarorð um Hákon heitinn, sameiginlegan barnsföður, sem er lýst sem „meðalmanni á hæð með ljósar krullur." Hinn látni hefur sjálfur sett saman lagaval fyrir eigin jarðarför og óskað sérstaklega eftir að konurnar fjórar flytji íslenskan texta við lag Nicole Scherzinger Don't Hold your Breath. Eftir því sem verkinu vindur fram kemur í ljós að það er ýmislegt málum blandið varðandi samband kvennanna við hinn látna.

Auður Ava Ólafsdóttir hefur áður skrifað þrjú leikrit, Svartur hundur prestsins (2011) og Svanir skilja ekki (2014) sem Þjóðleikhúsið setti upp og útvarpsleikritið Lán til góðverka (2014). Þar að auki er hún höfundur fjögurra skáldsagna og einnar ljóðabókar. Skáldsaga Auðar Övu, Afleggjarinn hefur verið þýdd á tuttugu og tvö tungumál.

Frumsýning 15. janúar 2015 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Elma Lísa Gunnarsdóttir

Katla Margrét Þorgeirsdóttir

María Heba Þorkelsdóttir

Tinna Hrafnsdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Auður Ava Ólafsdóttir

Leikstjóri

Stefán Jónsson

Tónlist

Árni Rúnar Hlöðversson

Leikmynd / búningar

Brynja Björnsdóttir

Lýsing / hljóð

Þórður Orri Pétursson

Hljóð

Ólafur Örn Thoroddsen

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo