Stóra svið

Elly

Sýningu lokið
Video placeholder

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Lengd

2:45 klst (með hléi)

Verð

12.900 kr.

Elly er komin aftur!

Í takmarkaðan tíma stígur Katrín Halldóra aftur á Stóra sviðið sem Elly Vilhjálms í rómaðri sýningu Gísla Arnar Garðarssonar eftir handriti Gísla og Ólafs Egils Egilssonar. Sýningin sló á sínum tíma öll met og naut fádæma vinsælda. Nú snýr Elly aftur vegna fjölda áskorana!

Hún bjó yfir óræðri dulúð og töfraði áhorfendur með söng sínum og leiftrandi persónuleika; túlkunin hógvær og ígrunduð, röddin silkimjúk og hlý. Líf Ellyjar varð stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti lítið um að svara því hún var dul og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna. Í þessari mögnuðu sýningu fetar Katrín Halldóra í fótspor einnar dáðustu söngkonu þjóðarinnar og syngur sig inn í hjörtu áhorfenda sem aldrei fyrr.

Myndir úr sýningunni

Myndbönd

5 stjörnur

Rýnir á hreinlega ekki nógu sterkt orð til að lýsa magnaðri túlkun Katrínar á Elly

S.B.H., Morgunblaðið

4 stjörnur

Búningahönnun Stefaníu Adolfsdóttur er bæði metnaðarfull og einstaklega vel heppnuð

S.J., Fréttablaðið

5 stjörnur

... hreinlega afrek hvað þeim tekst að gera sér mikinn mat úr efniviðnum og skapa lifandi persónur

S.B.H., Morgunblaðið

Listrænir stjórnendur

Höfundar

Gísli Örn Garðarsson og Ólafur Egilsson

Lýsing / Umsjón með enduruppsetningu

Þórður Orri Pétursson / Pálmi Jónsson

Tónlistarstjórn

Guðmundur Óskar Guðmundsson

Leikstjórn

Gísli Örn Garðarsson

Hljóð / Umsjón með enduruppsetningu

Garðar Borgþórsson / Þorbjörn Steingrímsson

Höfundur sviðshreyfinga

Selma Björnsdóttir

Leikmynd

Börkur Jónsson

Leikgervi / Umsjón með enduruppsetningu

Árdís Bjarnþórsdóttir / Elín Sigríður Gísladóttir

Hljómsveit

Aron Steinn Ásbjarnason Guðmundur Óskar Guðmundsson Hjörtur Ingvi Jóhannsson Þorvaldur Þór Þorvaldsson Örn Eldjárn

Búningar

Stefanía Adolfsdóttir

Hlustaðu á plötuna
Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo