Lýdía býr í fyrrum félagsblokk í úthverfi Reykjavíkur sem breytt hefur verið í gistirými fyrir ferðamenn. Gegn því að tékka ferðamenn inn og út úr blokkinni og afgreiða í lundabúðinni sem rekin er í sameigninni leyfir fasteignafélagið Porcellus henni að búa þar áfram. Án vitundar Porcellus hefur áhugasagnfræðingurinn Guðbrandur Númi hreiðrað um sig í geymslurými en fer um borgina að næturlagi í leit að pússlum í borgarsöguna.
Þegar Porcellus tekur að ógna tilveru þeirra beggja taka þau höndum saman um að láta drauma sína rætast: Þau setja upp epíska Reykjavíkurrevíu Guðbrandar í blokkinni og safna fé til að fljúga Lýdíu á vit milljónamæringa á samkomunni Super Life Extravaganza í Düsseldorf.
Extravaganza er grátbroslegt gamanleikrit eftir leikskáld Borgarleikhússins.
Í samstarfi við leikhópinn Soðið svið.
Frumsýning 28. október 2016 á Litla sviði Borgarleikhússins.