Stóra svið

Flækj­ur

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Verð

Flækjur, hæli í Borgarleikhúsinu, er óvænt og áhugaverð leikhúsreynsla í boði framand- verkaflokksins Kviss búmm bang í samstarfi við leikmyndahönnuðinn Tinnu Ottesen. Flokkurinn hefur ferðast víða um heim og hlotið einróma lof fyrir áhugaverðar og frumlegar sýningar af ólíku tagi.

Lausir við hvers kyns samskiptatæki og tól leggjast þátttakendur inn á hælið, dvelja í leikhúsinu og horfast í augu við allar þær flækjur sem lífið leggur okkur á herðar. Hælið er tilraunakennd meðferðarstöð við því að vera manneskja. Hér er í boði að gefast upp. Leggja allt frá sér. Lúta höfði. Aðeins örfá pláss eru laus í hælisdvölina, sem stendur yfir frá kl. 18.00 til miðnættis. Boðið er upp á kvöldverð og kvöldnasl.

Kviss búmm bang er hópur þriggja kvenna sem hafa starfað saman frá árinu 2009. Hópurinn hefur unnið að því að þróa verk sem krefjast

þátttöku áhorfenda og miða að því að leiða þá inn í tilbúnar kringumstæður þar sem þeir fylgja leiðbeiningum og upplifa nýstárlega sviðsetningu á raunveruleikanum og viðteknum hugmyndum. Sýningin er unnin í samvinnu við leikmyndahönnuðinn Tinnu Ottesen sem hefur komið víða við á ferli sínum og hannað rými og leikmyndir fyrir leikhús, kvikmyndir, dansverk og innsetningar.

Hópurinn hefur sýnt verk sín á virtum leiklistarhátíðum víða um heim, t.a.m Wiener Festwochen, Baltic Circle Helsinki, Spring Festival Utrecht og Mladi Festival í Ljubljana.

Leikarar

Guðjón Davíð Karlsson

Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Jóhanna Vigdís Arnardóttir

Sigrún Edda Björnsdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundar

Eva Rún Snorradóttir / Eva Björk Kaaber / Vilborg Ólafsdóttir

Leikmynd / útlit

Tinna Ottesen

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo