FÓRN er yfirskriftin á allsherjar sviðslistahátíð Íslenska dansflokksins sem fram fer í Borgarleikhúsinu í mars 2017. Á dagskránni eru splunkuný verk eftir listamennina Ernu Ómarsdóttur, Matthew Barney, Gabríelu Friðriksdóttur, Ragnar Kjartansson, Margréti Bjarnadóttur og Valdimar Jóhannsson.
Brúðkaup í Kringlunni, fermingarathöfn á Stóra sviðinu, útfararstofa á Litla sviðinu og lífleg skoðanaskipti á markaði í forsalnum.
No Tomorrow eftir Ragnar Kjartansson og Margréti Bjarnadóttur við tónlist Bryce Dessner, verkið vann tvenn Grímuverðlaun 2017, þ.á.m. sem Sýning ársins 2017.
Shrine eftir Ernu Ómarsdóttur og Valdimar Jóhannsson
Union of the North eftir Matthew Barney, Ernu Ómarsdóttur og Valdimar Jóhannsson
Dies Irae eftir Gabríelu Friðriksdóttur
Markaðurinn tengir hátíðarhöldin svo saman í forsal Borgarleikhússins þar sem búast má við óvæntum uppákomum, lifandi listsköpun og gleði.
FÓRN er metnaðarfull hátíð þar sem dans, myndlist, tónlist og leikur mynda heildstæða veröld. Tengsl listarinnar við trúarathafnir mannkyns eru rannsökuð og krufin. Sögulegar og menningarlegar rætur trúarinnar rifnar upp, rýndar og snúið á hvolf!
Einungis fimm sýningar verða á þessum stórviðburði.
Samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Lókal og Borgarleikhússins.
Frumsýning 16. mars 2017 í Borgarleikhúsinu.