Garðurinn – uppspretta og landslag skynjunar
Danshöfundarnir Antonio de Rosa og Mattia Russo nota garðinn
sem upphafspunkt og endurhugsa sem landslag skynjunar – þar sem skilin milli
skynfæranna verða óljós og upplifanir renna saman. Í Garðinum spretta
alheimssögur í smækkuðu formi. Heimur innan heims sem er síbreytilegur,
speglandi og þar sem rými gefst fyrir nánd.
Antonio de Rosa og Mattia Russo eru danshöfundarnir á bak
við KORSIA, upprennandi og spennandi listahóps frá Madrid sem hafa undanfarið
unnið með nokkrum af stærstu og virtustu dansflokkum í Evrópu. Þeir eru þekktir
fyrir sterk og sjónræn verk þar sem dans, leikhús og innsetningarlist mætast í
heillandi verkum sem ögra skynjun og vekja skynfærin til lífsins.
Danshöfundar: Antonio de Rosa og Mattia Russo
Dansarar: Andrean
Sigurgeirsson, Diljá Sveinsdóttir, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Hiroki Ichinose, Ísabella Tara Antonsdóttir, Jaakko Fagerberg, Matthea Lára Pedersen, Sara Lind Guðnadóttir, Shota Inoue, Una Björg Bjarnadóttir