Stóra svið

Guð blessi Ís­land

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Verð

Gleðileikur um hrunið, partýin og þynnkuna

Á Íslandi ríkir borgarastyrjöld. Búsáhaldabyltingin er hafin. Uppreisnarfólk stendur fyrir framan Alþingi og lemur potta og pönnur. Sigurinn er vís - vanhæf ríkisstjórn fellur. Í miðjum átökunum á Austurvelli samþykkir Alþingi að hrinda af stað rannsókn um orsakir hrunsins. Skýrsla kemur út í apríl 2010. Hún er yfirgripsmikil – en um fram allt æsispennandi, líkust reyfara sem varla er hægt að leggja frá sér. Þar er flett ofan af vafasömum viðskiptum ofurhetja íslenska bankakerfisins og ótrúlegum samskiptum æðstu embættismanna þjóðarinnar lýst. Lygileg samtöl lifna við – ólíkindaleg samskipti eiga sér stað. Þetta var partý aldarinnar. Þetta var siðlausasta skeið í sögu þjóðarinnar. Þetta var eitt mesta hneyksli í fjármálasögu Evrópu fyrr og síðar!

Áhorfendum er boðið í partý aldarinnar þar sem öllu verður tjaldað til og engum hlíft í ofsafenginni leit að sannleikanum – eða hvað? Af hverju fór allt til fjandans? Hvernig getur siðferði fólks brostið á þennan hátt? Hvernig er hægt að ræna heila þjóð öllu sem hún á? Og hvar stöndum við nú? Búum við í hinu nýja landi sem vonir stóðu til eftir hrunið? Hefur eitthvað breyst?

Þorleifur Örn Arnarsson og Mikael Torfason sameina krafta sína á ný eftir einstaklega vel heppnaða sviðsetningu á Njálu í Borgarleikhúsinu fyrir tveimur árum. Þar var tilurð sjálfsmyndar Íslendinga rannsökuð. Nú mun greining á íslenskri þjóðarsál halda áfram. Eins og í Njálu verður öllu tjaldað til: Tónlist, dans, myndlist, leikur og sprell. Guð blessi Ísland verður ógleymanlegur gleðileikur um hrunið og framtíð íslensku þjóðarinnar.

Góða skemmtun – ef þú þorir!

Frumsýning 20. október 2017 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Aðalheiður Halldórsdóttir

Arnmundur Ernst Backman

Brynhildur Guðjónsdóttir

Halldór Gylfason

Halldóra Geirharðsdóttir

Hilmar Guðjónsson

Hjörtur Jóhann Jónsson

Kristín Þóra Haraldsdóttir

Maríanna Clara Lúthersdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundar

Mikael Torfason / Þorleifur Örn Arnarsson

Leikstjórn

Þorleifur Örn Arnarsson

Danshöfundur

Aðalheiður Halldórsdóttir

Leikmynd

Ilmur Stefánsdóttir

Búningar

Sunneva Ása Weisshappel

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist

Katrín Hahner

Leikgervi

Sunneva Ása Weisshappel / Elín S. Gísladóttir

Hljóð

Baldvin Þór Magnússon

Myndband

Elmar Þórarinsson

Aðstoðarleikstjórn

Hlynur Páll Pálsson

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo