Kerling nokkur leggur á sig langt og strangt ferðalag til þess að koma sál syndaselsins eiginmanns síns inn í himnaríki. Á leiðinni hittir hún ýmsar persónur úr lífi hans og verður smám saman ljóst að það mun ekki reynast þrautalaust að koma „sálinni hans Jóns míns“ inn fyrir hið gullna hlið.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi varð þjóðþekkt skáld við útkomu fyrstu ljóðabókar sinnar, Svartar fjaðrir, árið 1919. Hann samdi fjögur leikrit og frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur Gullna hliðið jólin 1941. Verkið hitti beint í mark og varð eitt þekktasta og vinsælasta leikrit sem skrifað hefur verið á íslensku og hefur margoft verið sviðsett síðan, bæði hér á landi og erlendis.
Uppfærsla Leikfélags Akureyrar á Gullna hliðinu sló í gegn á síðasta leikári. Gagnrýnendur kepptust við að lofa sýninguna sem var tilnefnd til sjö verðlauna Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir búninga, leikmynd og leikstjórn. Leikstjóri verksins, Egill Heiðar Anton Pálsson, lauk framhaldsnámi í leikstjórn við Statens Teaterskole í Kaupmannahöfn og hefur einkum starfað við leikstjórn á Norðurlöndum og í Þýskalandi. Hann hefur sviðsett á þriðja tug leiksýninga og er nýráðinn prófessor við einn virtasta leiklistarskóla Evrópu, Ernst-Busch- skólann í Berlín.