Stóra svið

Hnotu­brjót­ur­inn - Jóla­sýn­ing Dans­garðs­ins Ósk­anda

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Lengd

100 mín með hléi

Verð

2.900 kr.

Næstu sýningar

1. sýning01. desember kl. 16:00
2. sýning01. desember kl. 18:30
Allar sýningar

Hnotu­brjót­ur­inn - Jóla­sýn­ing Dans­garðs­ins Ósk­anda

Hnotubrjóturinn - Jólasýningar Dansgarðsins Óskanda verður 1. desember kl. 16:00 og kl. 18:30.

Nú er komið að jólahefð Dansgarðsins, dansverkinu Hnotubrjótnum. Í ár eru um 150 nemendur sem taka þátt í uppfærslunni og hlökkum við til að deila með ykkur þessu skemmtilega jólaverki sem kemur öllum í hátíðarskap.

Sagan um Hnotubrjótinn í útfærslu Dansgarðsins Óskanda hefst í jólaboði þar sem Drosselmeyer frændi, göldróttur úra- og leikfangasmiður, kemur í heimsókn. Hann gefur guðdóttur sinni, Klöru, hnotubrjót sem er í álögum en lifnar við eftir að Klara sigrar rottukónginn í bardaga. Klara og hnotubrjóturinn fara inn í töfraskóg þar sem englar og snjókorn dansa. Næst fara þau í konungsríki úr sykri, þar sem sykurplómudrottningin tekur á móti þeim og mikil veisla er haldin í tilefni af
komu þeirra. Þar dansa ýmiss konar góðgæti eins og piparkökur, marsipan,
bollakökur, karamella, nammistafir, súkkulaði, lakkrís og að lokum blómaprinsessur og sykurplómudísir.

Hnotubrjóturinn er skemmtilegt ævintýri, fullt af töfrum. Verkið er blanda af nútímalistdansi og klassískum ballett. Dansverkið byggir á sögu E.T.A. Hoffmann og er flutt við sígilda tónlist Pyotr Ilyich Tchaikovsky.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo