Litla svið

Ífig­enía í Ás­brú

Video placeholder

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

7.950 kr.

Næstu sýningar

1. sýning12. september kl. 20:00
2. sýning13. september kl. 20:00
Allar sýningar

Ífig­enía í Ás­brú

,,Vissuð þið að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er alltaf kölluð sláturhúsið. Alltaf pökkuð, alltaf röð. Allir hóstandi og hnerrandi og ég finn svona hvernig ég er að verða veik að því að anda inn ógeðinu sem hinir anda út. Feita búkollu-mamman með massíva barnavagninn spyr móttökuna hversu lengi þurfa þau nú eiginlega að bíða. Konan í móttökunni segir að það er aftur bara einn læknir á vakt svo hún gerir ráð fyrir svona 2-3 klukkutímum að minnsta kosti"

Ífigenía í Ásbrú (Iphigenia in Splott) eftir Gary Owen er verðlaunaverk sem hefur farið sigurför um heiminn. Leikritið fjallar um Ífí, stelpuna sem þú tekur sveig framhjá þegar þú mætir henni hauslausri fyrir hádegi. En það sem þú veist ekki er að þú stendur í ævilangri þakkarskuld við hana. Og nú er komið að skuldadögum. 

Viðvörun: Verkið inniheldur senur um viðkvæm málefni og er bannað börnum. Til þess að spilla ekki fyrir upplifun þinni af verkinu hvetjum við þig til að fá nánari upplýsingar um sýninguna fyrirfram teljir þú að eitthvað gæti vakið upp óþægileg viðbrögð sem þú vilt forðast.

4 stjörnur

,,Þórey leikur umbúðalaust með hjartað galopið.”

Heimildin

,,Leikstjórn Önnu Maríu er styrk eins og stálþráður. Ekki nokkur áhorfandi fer ósnortinn heim af sýningunni”

Víðsjá, RÚV

,,Þetta verk á erindi við alla. Ekki missa af því”

TMM

,,Ífí er sjarmerandi, fráhrindandi, heillandi og hættuleg. Þórey neglir þetta allt.”

Morgunblaðið

,,Leiksigur! Leikhús með erindi og sál."

Jón Viðar

Leikarar og listrænir stjórnendur

Höfundur

Gary Owen

Leikkona

Þórey Birgisdóttir

Leikstjóri

Anna María Tómasdóttir

Aðstoðarleikstjóri

Gígja Hilmarsdóttir

Þýðing

Þórey Birgisdóttir og Anna María Tómasdóttir

Hljóðhönnun

Kristín Hrönn Jónsdóttir

Ljósahönnun

Ásta Jónína Arnardóttir

Ljósmyndari

Grace Jane Claiborn-Barbörudóttir

Plaggat grafík

Ragnar Fjalar Lárusson

Myndbandsefni

Árni Beinteinn

Lag

Anya Shaddock

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo