Borgarleikhúsið

Kjarval

  • Litla sviðið
  • Skólasýning
  • Verð: Eingöngu sýning fyrir grunnskóla - ekki í almennri sölu

SBH. Mbl

Kjarval

Flýtið ykkur út og horfið á fegurðina!

Barnasýningin um Kjarval: drenginn, manninn og málarann.

Listmálarinn Jóhannes Sveinsson Kjarval var ekki bara einn merkasti málari sem Íslendingar hafa átt, heldur má segja að hann hafi átt stóran þátt í að kenna þjóð sinni að meta stórbrotna náttúru landsins, náttúrunnar vegna. En hver var þessi sérkennilegi maður – og hvaðan kom hann? Í leikandi léttri fjölskyldusýningu sem byggir að hluta til á verðlaunabók Margrétar Tryggvadóttur um listamanninn, er leitast við að draga upp mynd af Kjarval; drengnum, manninum og málaranum.

Listin sjálf er sömuleiðis í brennidepli; hvernig hún er allt í kringum okkur og hefur áhrif á lífið alla daga, við horfum á listina og ef við erum heppin þá horfir hún til baka. Jóhannes Kjarval batt bagga sína ekki sömu hnútum og samferðamenn en kenndi okkur að líta umhverfið nýjum augum og sjá listina í hinu stórbrotna jafnt sem hinu hversdagslega – í hrikalegu hrauni en líka í mygluðum flatkökum.

Kjarval er einungis sýnd fyrir skólaheimsóknir. 

Tónlistin úr verkinu - Úlfur Eldjárn


Um verkið

Gagnrýni

„Kjarval er unnin af miklum metnaði og listfengi. Frábær leið til að kynna bæði myndlistina og leiklistina áhorfendum á öllum aldri.“

Silja Björk Huldudóttir

„Sjónræn umgjörð sýningarinnar er mikið konfekt fyrir augun.“

Silja Björk Huldudóttir

Kjarval

Leikarar

  • Sigurður Ingvarsson
  • Íris Tanja Flygenring

Listrænir stjórnendur

  • Höfundur leikgerðar og leikstjóri

    Stefán Hallur Stefánsson
  • Tónlist

    Úlfur Eldjárn
  • Leikmynd og búningar

    Guðný Hrund Sigurðardóttir
  • Lýsing

    Pálmi Jónsson
  • Hljóð

    Þorbjörn Steingrímsson
  • Leikgervi

    Elín S. Gísladóttir
  • Sviðshreyfingar

    Kata Ingva
  • Aðstoðarmaður leikstjóra

    Rakel Björk Björnsdóttir
  • Æfingastjóri og staðgengill leikstjóra leikárið 2023-2024

    Jörundur Ragnarsson