Nýja svið

Kok

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Verð

«ég var að leika mann
þess vegna brá þér
vegna þess að ég stóð upp
alltíeinu
kveikti eld
þess vegna brá þér»

Ljóða- og myndlistarbókin Kok eftir Kristínu Eiríksdóttur öðlast nýtt líf sem tónlistar- og leikhúsupplifun á fjölum Borgarleikhússins nú á haustdögum.

Kok vakti verðskuldaða athygli þegar hún kom út árið 2014 og var m.a. tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ljóð Kristínar fjalla á óvenjulega beinskeyttan hátt um samband og sambandsleysi, ást og andúð, þrá og skeytingarleysi þar sem mannlegt eðli er afhjúpað í öllum sínum dýrlega breyskleika.

Í bókinni mynda ljóðin og myndlistin eina heild og í sviðsverkinu er báðum þessum þáttum gert jafnhátt undir höfði og þeir fléttaðir saman við tónlistina og leikhústöfrana. Nútímaóperan Kok er flutt af Hönnu Dóru Sturludóttur, sem um árabil hefur verið meðal fremstu söngvara þjóðarinnar, Unu Sveinbjarnardóttur, fiðluleikara og Katie Buckley, hörpuleikara.

Verkið er sett upp í tengslum við tónlistarhátíðina Óperudaga, 21. – 31. október, í samvinnu við leikhópinn Svartan jakka, en hann skipa auk Kristínar þær Þórunn Gréta Sigurðardóttir, tónskáld, og leikstjórinn Kolfinna Nikulásdóttir. Áður hafa þær unnið saman að útvarpsverkinu Fákafen sem hlaut Grímuverðlaunin 2018.

Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg og Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Kristín Eiríksdóttir

Leikstjórn

Kolfinna Nikulásdóttir

Leikmynd / búningar

Steinunn Eyja Halldórsdóttir

Lýsing

Pálmi Jónsson

Tónlist

Þórunn Gréta Sigurðardóttir

Myndbandshönnun

Sigurður Möller Sívertsen

Hljóð

Garðar Borgþórsson

Flytjendur

Hanna Dóra Sturludóttir / Kaie Buckley / Una Sveinbjarnardóttir

Framleiðandi

Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

jafnlaunavottun 2023-2026

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo