Saman á sviðinu standa tíu börn á aldrinum átta til tólf ára sem hafa verið skilin eftir í heimi sem þau bjuggu ekki til. Þau taka yfir sviðið og eyða tíma saman, dansa, spila tónlist og tala við hvort annað. Börnin mæta heimi fullum af melankólíu, svartsýni, rómantík og ruglingi sem þau hafa erft en báðu aldrei um.
Made in Children er á mörkum mikils vonleysis og öfgafullrar bjartsýni og er börnunum gefinn laus taumur og þau send af stað í leit að háleitu siðferði, djúpstæðum innri frið og betri framtíð.
Listrænir stjórnendur eru Alexander Roberts, Ásrún Magnúsdóttir og Aude Busson í samvinnu við Borko, Guðnýju Ýr Sigurðardóttur, Friðþjóf Þorsteinsson, Baldvin Magnússon, Önnu Rut Bjarnadóttur, Matthildi Björnsdóttur, Herdísi Sigurðardóttur, Jörund Orrason, Flóka Dagsson, Ylfu Aino Eldon Aradóttur, Margréti Vilhelmínu Nikulásardóttur, Freyju Sól Francisco Heldersdóttir, Kolbeinn Orfeus Eiríksson, Kolbeinn Einarsson, and Óðinn Sastre Freysson.