Stóra svið

Mamma mía!

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Lengd

2:45 klst (með hléi)

Verð

Yfir 54 milljónir manna um allan heim hafa hrifist með og fallið fyrir persónum, sögu og rífandi fjörugri tónlist ABBA í söngleiknum heimsfræga MAMMA MIA. Enn fleiri hafa séð bíómyndina með Meryl Streep í aðalhlutverki en sagan segir frá einstæðri móður sem undirbýr brúðkaup einkadóttur sinnar. Forvitni dótturinnar ungu um uppruna sinn verður til þess að hún býður á laun þremur gömlum kærustum móður sinnar í brúðkaupið í því skyni að komast að því hver þeirra sé faðir hennar. Nú eru góð ráð dýr; feðurnir vilja allir eiga dótturina og móðirin þarf að horfast í augu við skrautlega fortíð sína - úr verður syngjandi skemmtilegur tilfinningarússíbani fyrir alla viðstadda.

Unnur Ösp Stefánsdóttir tekst hér á við einn frægasta söngleik allra tíma með einvala hóp listamanna sér við hlið. Saman bjóða þau okkur uppá ómótstæðilega gleðisprengju, sannkallaða stórsýningu sem hrífur unga sem aldna!

Catherine Johnson (1957) er breskur leikrita- og handritshöfundur, best þekkt fyrir handrit sitt að kvikmyndinni og söngleiknum Mamma mia sem farið hefur sigurför um heiminn. ABBA (1972) var sænsk popphljómsveit sem sló í gegn um allan heim á áttunda áratugnum. Hljómplötur þeirra eru með söluhæstu hljómplötum allra tíma.

Frumsýning 11. mars 2016 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Arnar Dan Kristjánsson

Brynhildur Guðjónsdóttir

Esther Talía Casey

Eysteinn Sigurðarson

Halldór Gylfason

Helgi Björnsson

Jóhanna Vigdís Arnardóttir

Maríanna Clara Lúthersdóttir

Orri Huginn Ágústsson

Vala Kristín Eiríksdóttir

Valur Freyr Einarsson

Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundar

ABBA / Catherine Johnson

Leikstjóri

Unnur Ösp Stefánsdóttir

Þýðing

Þórarinn Eldjárn

Leikmynd

Ilmur Stefánsdóttir

Búningar

Filippía Elísdóttir

Lýsing

Þórður Orri Pétursson

Danshöfundur

Lee Proud

Tónlist

ABBA

Tónlistarstjóri

Jón Ólafsson

Hljóð

Gunnar Sigurbjörnsson

Leikgervi

Árdís Bjarnþórsdóttir

Myndvinnsla

Petr Hlousek

Aðstoðarleikstjórn

Hlynur Páll Pálsson

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo