Nýja svið

Marat/Sade

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Lengd

2:15 klst

Verð

Bæling og losti, kúgun og uppreisn, hinir jaðarsettu gegn valdinu!

Marat/Sade, öðru nafni Ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn De Sade markgreifa, er eitt af öndvegisverkum 20. aldarinnar – marglaga og margslungið í efni og formi. Verkið, sem er eftir þýska leikskáldið Peter Weiss, var fyrst frumsýnt árið 1963 og hefur frá upphafi verið umdeilt og vakið sterk viðbrögð.

Hér er leikrit inni í leikriti – vistmenn geðveikrahælisins í Charenton setja á svið verk undir stjórn hins alræmda markgreifa De Sade. De Sade er einnig höfundur leikritsins og sjálfur vistmaður á hælinu. Verkið hverfist um frönsku byltinguna og er þrungið átökum og andstæðum sem endurspeglast í hinum týndu sálum hælisins.

Í uppfærslu Lab Loka og Borgarleikhússins á þessu kraftmikla leikriti verður til mögnuð sýning þar sem Nýja sviðið fyllist af mörgum dáðustu en jafnframt elstu listamönnum íslensku þjóðarinnar en þau yngstu eru um sjötugt og þau elstu fast að níræðu. Hér er óhætt að lofa einstakri upplifun og sjónarspili sem seint gleymist.

Verkefnið er stutt af Reykjavíkurborg og Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, bæði úr sviðslistasjóði og launasjóði sviðslistafólks.

Frumsýning 20. janúar 2023 á Nýja sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Arnar Jónsson

Arnfinnur Daníelsson

Árni Pétur Guðjónsson

Ásgeir Gunnarsson

Eggert Þorleifsson

Guðmundur Ólafsson

Halldóra Harðardóttir

Hanna María Karlsdóttir

Harald G. Haraldsson

Helga Elínborg Jónsdóttir

Jón Hjartarson

Jórunn Sigurðardóttir

Júlía Hannam

Kristbjörg Kjeld

Margrét Guðmundsdóttir

Reynir Jónasson

Sigurður Karlsson

Sigurður Skúlason

Viðar Eggertsson

Þórhallur Sigurðsson

Þórhildur Þorleifsdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Peter Weiss

Þýðing

Árni Björnsson

Leikstjórn

Rúnar Guðbrandsson

Leikmynd / búningar

Filippía Elísdóttir / Ingibjörg Jara Sigurðardóttir

Tónlist

Richard Peaslee

Tónlistarstjórn

Guðni Franzson

Lýsing

Arnar Ingvarsson

Sviðshreyfingar

Valgerður Rúnarsdóttir

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo