„Maður þarfnast þess ... að vera með öðrum“
George og Lennie eru farandverkamenn sem flakka saman á milli vinnustaða. Annar er risavaxinn og barnslegur, hinn smávaxinn en lífsreyndur. Þeir vinna til að lifa af og þrauka en deila saman fjarlægum draumi um betra líf. Það er draumurinn um eigin jörð þar sem Lennie fær að halda kanínur í friði og ró og George getur ræktað jörðina. Þeir hefja vinnu á nýjum stað og skyndilega er draumurinn innan seilingar. En suma drauma þarf að gjalda dýru verði.
Mýs og menn er eitt af helstu meistaraverkum bandarískra bókmennta. Í henni varpar John Steinbeck fram spurningum um hvaða mat við leggjum á manneskjuna og hvert gildi hennar er þegar hún virðist ekki vera neinum til gagns. Kvikmyndaútgáfa sögunnar var tilnefnd til fjölda Óskarsverðlauna árið 1939 og ný útgáfa hennar keppti svo um Gullpálmann í Cannes árið 1992.
Sýningin í Borgarleikhúsinu fór rakleitt í hjartastað íslenskra leikhúsgesta.
Frumsýning 29. desember 2012 á Stóra sviði Borgarleikhússins.