Litla svið

Natan

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Morðið á Natani Ketilssyni og Pétri Jónsyni á Illugastöðum í Húnavatnssýslu í mars árið 1828 er eitt þekktasta og umtalaðasta sakamál Íslandssögunnar og leiddi til síðustu aftökunnar hér á landi. Þau Agnes Magnúsdóttir vinnukona og Friðrik Sigurðsson bóndasonur voru hálshöggvin á Þrístöpum 12. janúar 1830, en bústýran Sigríður Guðmundsdóttir var send til fangelsisvistar í Kaupmannahöfn fyrir aðild sína að málinu og lést þar. Atburðir þessir tóku snemma á sig goðsagnakenndan blæ og sögusagnir fóru á kreik um ástir og afbrýði þeirra sem hlut áttu að máli og hefur saga þeirra verið endalaus uppspretta skáldsagna, leikrita, kvikmynda og fræðigreina.

Leikhópurinn Aldrei óstelandi leggur hér út í rannsókn á tildrögum morðsins og leitar meðal annars fanga í dómsskjölum og þeim fjölmörgu fræðigreinum, bókum, kvikmyndum og sjónvarpsefni sem komið hafa út um þetta efni. Hvað varð til þess að þessar venjulegu manneskjur frömdu svo hryllilegan glæp? Er nokkurn tíma hægt að komast að sannleikanum í svo gömlu sakamáli?

Í samstarfi við Aldrei óstelandi.

Frumsýning 26. október 2017 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Birna Rún Eiríksdóttir

Edda Björg Eyjólfsdóttir

Kjartan Darri Kristjánsson

Stefán Hallur Stefánsson

Listrænir stjórnendur

Handrit

Leikhópurinn Aldrei óstelandi / Salka Guðmundsdóttir

Leikstjóri

Marta Nordal

Leikmynd

Axel Hallkell

Búningar

Helga I. Stefánsdóttir

Hljóðmynd

Kippi Kanínus

Aðstoðar leikstjórn

Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo