Stóra svið

Njála

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Verð

Njála er nýtt íslenskt leikverk sem byggir á Brennu-Njálssögu, einni ástsælustu sögu okkar Íslendinga. Sagan hefur lifað með þjóðinni í sjöhundruð ár, lesin í öllum menntaskólum landsins og sjaldan verið vinsælli en einmitt nú. Hún segir frá því hvernig við urðum að þjóð, og hetjur bókarinnar, þau Gunnar, Skarphéðinn, Njáll, Hallgerður og Bergþóra eru sveipuð goðsagnakenndum ljóma og hafa mótað og markað þjóðarsálina allt til þessa dags.

Leikhópurinn og Íslenski dansflokkurinn, undir stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar, munu tjalda öllu til og nýta ótakmarkaða töfra leikhússins til að takast á við þessa stórbrotnu sögu í sýningu sem verður í senn forvitnileg, ögrandi og litrík leikhúsveisla. Bardagar, ástir, hefndir og völd en umfram allt Njála eins og þú hefur aldrei séð hana áður!

Mikael Torfason er blaðamaður og rithöfundur og vakti fyrst athygli með skáldsögunni Falskur fugl sem kom út árið 1997, síðan hefur hann sent frá sér fjórar skáldsögur og leikritið Harmsögu. Þorleifur Örn Arnarson hefur getið sér gott orð sem leikstjóri hérlendis og erlendis og hefur unnið m.a. unnið leikgerðirnar að Englum alheimsins og Sjálfstæðu fólki.

Erna Ómarsdóttir er vafalaust einn virtasti dansari og danshöfundur Íslendinga og hafa verk hennar verið sýnd á hinum ýmsu dans- og listahátíðum víða um heim. Hún hefur unnið með nokkrum af fremstu dans- og sviðslistahópum Evrópu og listamönnum á borð við Jan Fabre, Sidi Larbi Cherkaoui, Björk, Jóhanni Jóhannsson og Gabríelu Friðriksdóttur. Erna hefur víða vakið athygli fyrir sinn einstaka stíl og hlotið mikið lof fyrir verk sín, núna síðast fyrir verkið Black Marrow sem hún samdi ásamt Damien Jalet, en það verk var einmitt tilnefnt til Grímuverðlaunanna 2015 sem Sýning ársins.

Njála er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins.

Frumsýning 30. desenber 2015 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Aðalheiður Halldórsdóttir

Björn Stefánsdóttir

Brynhildur Guðjónsdóttir

Hilmar Guðjónsson

Hjördís Lilja Örnólfsdóttir

Hjörtur Jóhann Jónsson

Jóhann Sigurðarson

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir

Sigrún Edda Björnsdóttir

Unnur Ösp Stefánsdóttir

Vala Kristín Eiríksdóttir

Valgerður Rúnarsdóttir

Valur Freyr Einarsson

Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundar

Erna Ómarsdóttir / Mikael Torfason / Þorleifur Örn Arnarsson

Leikstjóri

Þorleifur Örn Arnarsson

Danshöfundur

Erna Ómarsdóttir

Leikmynd

Ilmur Stefánsdóttir

Búningar

Sunneva Ása Weisshappel

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist

Árni Heiðar Karlsson / Valdimar Jóhannsson

Leikgervi

Margrét Benediktsdóttir

Hljóð

Baldvin Þór Magnússon

Hljóðmynd

Baldvin Þór Magnússon / Valdimar Jóhannsson

Aðstoðarleikstjórn

Gunnur Martinsdóttir Schlüter

Dramatúrg

Uwe Gössel

Kór

Karlakór Kópavogs

Starfsnemar

Brynjar Valþórsson / Kolfinna Nikulásdóttir

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo