Litla svið

Núna 2019

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Núna er ekki á morgun, það er NÚNA …

Síðastliðinn vetur fór Borgarleikhúsið aftur af stað með verkefni sem kallast NÚNA 2019. Leitað var til sex ungra höfunda um hugmyndir að 30 mínútna leikritum og urðu þrjár kraftmiklar og spennandi hugmyndir fyrir valinu. Höfundar þeirra eru Hildur Selma Sigbertsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson og Þórdís Helgadóttir. Verk þeirra hafa síðan verið þróuð áfram í samvinnu við dramatúrga Borgarleikhússins og leikstjóra verkefnisins, Kristínu Jóhannesdóttur og verða sýnd saman á einu kvöldi.

Höfundarnir fylgja í fótspor Tyrfings Tyrfingssonar, Kristínar Eiríksdóttur og Sölku Guðmundsdóttur sem ruddu brautina með NÚNA 2013 og hafa skipað sér í framvarðarsveit íslenskra leikskálda.

Verkin:

Sumó
eftir Hildi Selmu Sigbertsdóttur

Finnst ekki öllum kósí að skreppa aðeins upp í bústað eftir erfiða vinnuviku? Skipta um umhverfi. Henda einhverju góðu á grillið og slaka á.Það er bara eitthvað svo næs við að kíkja upp í sumó. Eða hvað?

Hildur Selma útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands vorið 2018.

Stóri Björn
eftir Matthías Tryggva Haraldsson

Stóri Björn er einbúi í heimi þar sem persónurnar heita furðunöfnum og kakkalakkar spyrja hvort seríósskálin á sviðinu sé mastersgráða, klámspóla eða „spirituality“.

Matthías Tryggvi útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands vorið 2018

Þensla
eftir Þórdísi Helgadóttur

Agnes er búin að fylla stofuna af hitalömpum og rakatækjum. En það er samt ekki út af þessu sem Egill er að skilja við hana.

Þórdís Helgadóttir er menntuð í heimspeki, ritlist og ritstjórn í Háskóla Íslands og hefur starfað við ritstörf af ýmsu tagi.

Leikarar

Ebba Katrín Finnsdóttir

Haraldur Ari Stefánsson

Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Hannes Óli Ágústson

Katla Margrét Þorgeirsdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundar

Hildur Selma Sigbertsdóttir / Matthías Tryggvi Haraldsson / Þórdís Helgadóttir

Leikstjórn

Kristín Jóhannesdóttir

Leikmynd / búningar

Stígur Steinþórsson

Lýsing

Þórður Orri Pétursson

Tónlist

Garðar Borgþórsson

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo