Stóra svið

Of­ur­hetjumús­in

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Lengd

45 mínútur

Verð

2.900 kr.

Næstu sýningar

Allar sýningar

Of­ur­hetjumús­in

Ofurhetjumúsin er falleg saga um vináttu, hún er full af skemmtilegum leikskólalögum og það má endilega syngja með! Höfundur og leikstjóri Ofurhetjumúsarinnar er Þórunn Arna Kristjánsdóttir, sem leikstýrði meðal annars sýningunni Fíasól gefst aldrei upp og Emil í Kattholti.

Ofurhetjumúsin er tilvalin sýning fyrir fyrstu leikhúsferðina!

Áhorfendur fá að heyra æsispennandi ævintýri, eða kannski alveg ótrúlega sögu, pínulitla sögu um ennþá minni mús sem ferðast um undraheima leikhússins í leit að hugrekki sínu. Þetta er engin venjuleg mús. Þetta er ofurhetjumús, sem býr yfir öllum þeim ofurhetjukröftum sem til eru. En dag einn gerist það ótrúlega að ofurhetju kraftarnir fjúka út í veður og vind og eftir stendur bara ósköp venjuleg mús. Hún ákveður því að leggja upp í mikla háskaför til þess að finna kraftana sína. Á ferðalaginu mætir hún miklum hindrunum og þarf að horfast í augu við sinn stærsta ótta en kemst um leið að því hversu gott það er að eiga góðan vin sem mætir á svæðið og styður og hvetur mús áfram þegar mús þarf mest á því að halda.

Sunnudaginn 18. maí verður „afslöppuð sýning“ á Ofurhetjumúsinni.

Á afslöppuðum sýningum eru ljós í áhorfendasal dempuð í stað þess að vera slökkt, hurð er opin á meðan sýningu stendur og auðvelt fyrir gesti að fara inn og út úr salnum, færri áhorfendur eru í salnum og pláss til að hreyfa sig á meðan sýningu stendur. Í forsal verður boðið upp á skynrými sem er afdrep þar sem hægt er að fá hvíld frá áreiti. Heyrnarskjól (peltorar) til láns eru í boði hjá starfsfólki í forsal.

Hér er að finna sönghefti með lögunum úr sýningunni.

Tónlist úr sýningunni

Listrænir stjórnendur

Höfundur og leikstjóri

Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Tónlist og útsetningar

Rakel Björk Björnsdóttir

Lýsing

Pálmi Jónsson

Myndbönd

Elmar Þórarinsson og Pálmi Jónsson

Hljóðmynd

Þorbjörn Steingrímsson

Myndskreytingar á kynningarefni

Fanney Sizemore

Endurgerð leikmyndar leikárið 2024-2025

Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir

Æfingastjóri / staðgengill leikstjóra leikárið 2024-2025

Emelía Antonsdóttir Crivello

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo