Litla svið

Rautt

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Rautt er leikrit um einn áhrifamesta listamann tuttugustu aldarinnar, Mark Rothko, baráttu hans við sjálfan sig – eða öllu heldur við goðsögnina um sjálfan sig – og hinn eilífa ótta listamannsins við að verða úreltur. „Það er harmleikur fólginn í hverri pensilstroku“ sagði Mark Rothko um eigin verk. Hann var einn mikilvægasti málari 20. aldarinnar og tók að sér eitt stærsta verkefni listarsögunnar fyrir áður óþekkta upphæð. Þrátt fyrir þennan heiður sækja að honum efasemdir og innri átök brjótast fram í samskiptum hans við unga aðstoðarmanninn, Ken. Átökin eru ekki aðeins milli meistara og lærlings heldur fulltrúa nýrra tíma og hins helga konungs myndlistarinnar. Ólík viðhorf til lífsins takast á og um leið afhjúpast ævi aðstoðarmannsins; sorglegir atburðir fortíðar knýja dyra og átökin hafa óvæntar afleiðingar. Þótt báðir komi sárir úr því einvígi hafa þeir engu að síður unnið sigur, hvor á sinn hátt.

Rautt hefur sópað til sín verðlaunum víða um heim á síðustu árum. Meðal annars hlaut það hin virtu Tony verðlaun árið 2010. Rautt er gríðarlega vel skrifað leikrit með sterkum persónum, sígildum spurningum um lífið og óvæntum afhjúpunum.

John Logan (f. 1961) hefur skrifað fjölmörg leikrit og kvikmyndahandrit og víða fengið fyrir þau verðlaun og viðurkenningar. Hann skrifaði m.a. handrit að kvikmyndunum The Aviator, Gladiator og Hugo sem allar hlutu tilnefningar til Óskarsverðlauna.

Frumsýning 21. september 2012 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Hilmar Guðjónsson

Jóhann Sigurðarson

Listrænir stjórnendur

Höfundur

John Logan

Þýðing

Guðrún Vilmundardóttir

Leikstjóri

Kristín Jóhannesdóttir

Leikmynd / búningar

Helga I. Stefánsdóttir

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Hljóð

Thorbjørn Knudsen

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo