Í dansverkinu Reið skoða danshöfundarnir Steinunn Ketilsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir hvar mörkin liggja á milli konunnar og hryssunnar og hvernig þær endurspegla hvor aðra.
Samlíking konunnar og hryssunnar býður upp á margar spaugilegar myndir en getur um leið varpað ljósi á önnur og jafnvel dekkri málefni lífsins og kveikt spurningar um eðli náttúrunnar og grunnþarfir bæði manna og skepna; kærleika, umhyggju, samstöðu, samkeppni, o.s.frv. Jafnframt varpar verkið ljósi á það sem menn og skepnur eiga sameiginlegt, hvað tekist er á um og hvernig hegðun þeirra er innan hóps sem og utan hans. Jafnframt beinir verkið sjónum að náttúrulegum sérkennum kvendýrsins og fegurðinni sem felst í því að vera kona, móðir, vinkona, systir, eiginkona eða gyðja.
Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu og sýnt á Reykjavík Dance Festival.
Frumsýning 30. ágúst 2014 á Stóra sviði Borgarleikhússins.