Litla svið

Reykja­vík­ur­dæt­ur / RVK­DTR

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Reykjavíkurdætrum er gefinn laus taumurinn og sprengja þakið af húsinu. Íslenska hip-hop rappsveitin Reykjavíkurdætur er hópur ungra kvenna sem er fátt óviðkomandi í mögnuðum og oft pólitískum textum sínum. Þær hafa komið víða fram og alls staðar vakið mikla athygli, allt frá viðtalsþætti Gísla Marteins til hátíðarinnar Hróaskeldu í Danmörku. Þær hneyksla og heilla, vekja til umhugsunar og ganga langt í að fara út fyrir þægindarammann, sinn eigin og annarra, með róttækri framgöngu sinni og framsetningu. Þær eru ekki allra og allir eru ekki þeirra. Deilir þó enginn um það að Reykjavíkurdætur eru sannkallaðar sviðslistakonur.

Þær snerta við áhorfendum sínum á nýjan hátt og sögur fara af áhrifamikilli sviðsframkomu þeirra á tónleikum. Þessar ungu konur nýta sér kraft fjöldans, textans og framsækninnar og það má með sanni segja að Reykjavíkurdætur þora. Hvað ef Reykjavíkurdætrum væri gefinn laus taumurinn og mættu gera hvað sem þær langaði til – í Borgarleikhúsinu?

Allt getur gerst!

Frumsýning 11. maí 2017 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Höfundar

Ásthildur Úa Sigurðardóttir

Jóhanna Rakel Jónasdóttir

Kolfinna Nikulásdóttir

Salka Valsdóttir

Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir

Steinunn Jónsdóttir

Leikstjórn

Kolfinna Nikulásdóttir

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo