Litla svið

Saum­ur

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Er framtíðin okkar?

Par í stormasömu sambandi neyðist til að ákveða hvort það sé tilbúið til þess að ala upp barn. Unga parið veltir fyrir sér hvort það eigi framtíð saman þrátt fyrir reiði og biturð yfir svikum fortíðarinnar. Ef hvorki er hægt að taka til baka það sem sagt hefur verið né það sem hefur verið gert, er þá hægt að hefja nýtt líf án þess að fyrirgefa?

Anthony Neilson (1967) er tvímælalaust eitt magnaðasta samtímaleikskáld Bretlands. Neilson hefur skrifað mikinn fjölda leikrita, gríðarlega ólík að gerð, innihaldi og framsetningu. Meðal verka eftir hann sem flutt hafa verið hérlendis má nefna Penetreitor, Ófagra veröld og Lík í óskilum.

Ríkharður Hjartar Magnússon útskrifaðist úr Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands vorið 2013. Saumur er fyrsta leikstjórnarverkefni hans. Verkið var upphaflega útskriftarverkefni Ríkharðs og vakti mikla athygli en verður nú sýnt í nýrri og endurbættri útgáfu.

Á hverju ári útskrifar Listaháskólinn hátt á þriðja tug sviðslistafólks. Þetta fólk slær okkur blíðlega utan undir, því fylgja nýjar hugmyndir og önnur viðhorf. Ef þetta fólk væri ekki til þá myndi leikhúsið deyja út. Við þurfum að hlúa að því. Borgarleikhúsið hefur í gegnum árin kappkostað við að fá vaxtarsprota inn í húsið, leikara, leikstjóra, höfunda og annað sviðslistafólk. Einn af þessum vaxtarsprotum er Ríkharður Hjartar Magnússon. Við bjóðum hann velkominn.

Frumsýning 19. október 2013 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Hjörtur Jóhann Jónsson

Vala Kristín Eiríksdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Anthony Neilson

Þýðing

Ríkharður Hjartar Magnússon

Leikstjórn

Ríkharður Hjartar Magnússon

Leikmynd

Móeiður Helgadóttir

Hljóðmynd

Páll Ivan frá Eiðum

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo