Borgarleikhúsið

Sextíu kíló

  • Litla sviðið
  • Verð: 5500
  • Væntanleg
  • Miðasala er ekki hafin á sýninguna Sextíu kíló. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
  • Kaupa kort

Sextíu kíló

Heimur bókanna opnast

Hallgrímur Helgason er margverðlaunaður metsöluhöfundur sem fangað hefur hug og hjörtu þjóðarinnar með verkum sínum um fólkið í sjávarþorpinu Segulfirði í bókum sínum Sextíu kíló af sólskini, Sextíu kíló af kjaftshöggum og þriðju bókinni, Sextíu kíló af sunnudögum sem væntanleg er nú í haust.

Hallgrímur er kunnur sögumaður og hefur haldið gríðarlega vinsæl námskeið þar sem hann opnar bækurnar upp á gátt fyrir lesendum sínum og nú gerir hann gott betur og býður gestum til sætis á Litla sviði Borgarleikhússins. Á sviðinu rekur hann frásögnina í gegnum skáldsögurnar af alkunnri list, les upp úr bókunum, lyftir hulunni af vinnuferlinu, baksögunum og innblæstrinum og gæðir persónur sínar lífi sem aldrei fyrr.