Nýja svið

Straum­ur

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Verð

7.900 kr.

Næstu sýningar

Frumsýning30. október kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn14. nóvember kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn21. nóvember kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn27. nóvember kl. 20:00
Allar sýningar

Straum­ur

Straumur er fjölbreytt kvöldstund þar sem fjórir upprennandi danshöfundar leiða okkur um ólíka heima samtímadansins. Danshöfundarnir voru valdir úr um 120 umsóknum sem bárust Íslenska dansflokknum víðsvegar að úr heiminum í kjölfar opins kalls.

Verkin fjögur eiga það sameiginlegt að beina sjónum að mannlegu eðli, en gera það frá ólíkum sjónarhornum og með afar ólíkum nálgunum.

Útkoman er eins konar hlaðborð af samtímadansi; fjórir ólíkir heimar, hver með sitt hreyfitungumál, sinn tón og sína sýn. Með Straumi gefst einstakt tækifæri til að kynnast fjölbreytileika samtímadansins og leyfa honum að koma sér á óvart.

Briefly Gorgeous

eftir Hiroki Ichinose

Í gegnum tíðina hefur Hiroki Ichinose ítrekað flutt sig á milli borga, landa og heimsálfa. Með hverjum flutningi fylgja ekki aðeins eigur sem þarf að pakka niður heldur einnig minningar, sambönd og síbreytileg sýn á sjálfan sig. Us Moving On sprettur úr þessari persónulegu reynslu og veltir fyrir sér því sem við veljum að taka með okkur, því sem verður eftir og því sem reynist erfitt að sleppa takinu á. Verkið nálgast umbreytingar, ekki sem ferðalag milli tveggja staða, heldur sem sammannlega reynslu þar sem endalok skapa rými fyrir nýtt upphaf, sorg afhjúpar dýpt tengsla okkar og fyrri útgáfur af okkur sjálfum halda áfram að móta þær ákvarðanir sem við tökum.

Blue Wall

eftir Leevi Mettinen

Blue Wall eftir Leevi Mettinen er dansverk sem rannsakar óttann og þær birtingarmyndir sem hann getur tekið á sig.

Með því að hafna línulegri frásögn og hefðbundinni rökvísi sækir verkið innblástur í málverk sem kanna mörkin milli sársauka og nautnar. Það dregur jafnframt fram einstaklingsmiðaða sýn á mannslíkamann og tengsl velferðar og hernaðar. Í gegnum þetta landslag leitast tveir dansarar við að gefa óttanum form og miðla því hvernig hann getur birst og fundist.

Verkið og innri rökfræði þess leitast einnig við að varpa ljósi á og efast um skynsemi óttans og viðfangsefni hans. Bæði áþreifanlegur og óhlutbundinn ótti eru raunveruleg fyrirbæri og þetta er óður til þeirra.

[Titill Söruh]

eftir Sarah Aviaja Hammeken

Verkið sækir innblástur í grænlenskar inúítasagnir og rannsakar hið viðkvæma samband milli mannkyns, samkenndar og tengsla okkar við heiminn í kringum okkur. 

Í menningu Inúíta eru goðsagnir meira en einfaldar frásagnir, þær eru leiðarvísar að lífinu. Þær hafa gengið milli kynslóða og miðla virðingu fyrir náttúrunni, ábyrgð gagnvart öðrum og meðvitund um afleiðingar gjörða okkar. Verkið sækir innblástur í þessar sagnir sem eru oft á tíðum sérkennilegar, ógnvekjandi og oft hrjúfar í myndmáli sínu. Þær beina oftar en ekki sjónum að dekkri hliðum mannlegrar hegðunar.

Verkið umbreytir þessum fornu frásögnum í samtímalega íhugun um samtíð okkar. Í heimi sem virðist sífellt sundraðri og miskunnarlausari spyr það hvað gerist þegar við glötum hæfni okkar til samkenndar og umhyggju. Hvað verður um okkur þegar við gleymum þeim gildum sem eitt sinn tengdu okkur hvert öðru, náttúrunni og okkur sjálfum?

Skjálftavaktin // The Tremor Watch

eftir Sóley Ólafsdóttur

Á Skjálftavaktinni hreyfast jarðskorpuflekar í takt og ótakt við suð áreitisins í kringum okkur. Öflin mætast við miðju hjartans og leita stjórnunar í talnakerfum sem stýra hreyfingum og hugsunum dansaranna. Sóley vinnur náið með raftónlistarmanninum Örlygi Steinari Arnalds. Í verkinu nota þau töfrakassann, aðferð úr tónsmíð sem yfirfærist á hreyfingarnar og skapar kerfisbundið samtal hljóðs og hreyfingar eftir nákvæmum talningum.

Í verkinu takast á tvær umbreytingar: draugurinn og vélin. Vélin lætur undan stjórn og dofnar á meðan draugurinn verður að finna til. Hreyfingarnar búa yfir mikilli spennu og sækja innblástur í skylmingar, í stöðugri tilfinningu fyrir því að þurfa að verja sig og vera tilbúin að verða stungin í hjartað.

Áreitið verður svo mikið að höfuðkúpan umbreytist í grjóthart stál. Tvö höfuð, draugsins og vélarinnar, finna hlýjan stað í húð og snertingu hvors annars. Þar fá hugsanirnar losun og fuðra upp um stund.

//

At the Tremor Watch, tectonic plates move in and out of sync with the buzz of the overstimulating signals surrounding us. Forces meet at the centre of the heart and seek control through numerical systems that govern the dancers’ movements and thoughts. Sóley works closely with the electronic musician Örlygur Steinar Arnalds. In the work, they use the magic square, a compositional method that is transferred into movement, creating a systematic dialogue between sound and movement with precise counting.

Two transformations unfold: the ghost and the machine. The machine surrenders to control and grows numb, while the ghost has no option but to feel. The movements carry alot of tension and draw inspiration from fencing, from the constant feeling of having to defend oneself and remain ready to be stabbed in the heart.

The stimulation becomes so overwhelming that the skull transforms into steel. The two heads, the ghost’s and the machine’s, find a place of warmth in each other’s skin and touch. There, their thoughts are released and flare up, for a moment.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo