Litla svið

Stúlk­an sem stöðv­aði heim­inn

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Allt er úr sama efninu. Ég og þú, hundaskítur og geimryk.

Getur orðið til töfrandi ævintýraheimur úr ruslinu sem við hendum? Endurvinnsla, undirvitund, umbreyting.

Hvað gerir stúlka sem þarf að finna sig á nýjum stað? Til að takast á við stórar áskoranir þarf oft hugrekki til að kafa niður á órætt dýpi. Stúlkan sem stöðvaði heiminn er hrífandi myndræn upplifun fyrir stóra og smáa.

Stórkostlegur sköpunarkraftur helst í hendur við kraumandi ímyndunarafl ! Áhorfendur eru leiddir úr einni veröld í aðra sem eru hver annarri forvitnilegri, furðulegri og fallegri. Saga stúlkunnar er ófyrirsjáanleg og spennandi en á sama tíma notalega kunnugleg.

Töfrandi saga og ævintýraleg upplifun!

Samstarf við sviðslistahópinn 10 fingur.

Leikhópurinn 10 fingur hefur um árabil lagt áherslu á að gera sýningar sem börn og fullorðnir geta notið saman. Þau hafa sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar og má þar meðal annars nefna sýningarnar Skrímslið litla systir mín og LÍFIÐ - stórskemmtilegt drullumall sem mörgum eru minnistæðar fyrir óvænta leikhústöfra og ljóðrænt sjónarspil sem snertir um leið við áhorfendum.

Frumsýning 30. október 2020 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Benedikt Karl Gröndal

Sólveig Guðmundsdóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundar

10 fingur

Leikstjórn

Helga Arnalds

Leikmynd / myndheimur

Eva Signý Berger / Helga Arnalds

Búningar

Eva Signý Berger

Aðstoðarleikstjórn

Sigríður Sunna Reynisdóttir

Tónlist / hljóðmynd

Valgeir Sigurðsson

Sviðshreyfingar

Katrín Gunnarsdóttir

Hönnun lýsingar / tæknistjórnun

Fjölnir Gíslason / Kjartan Darri Kristjánsson

Búningasaumur

Alexía Rós Gylfadóttir

Framkvæmda- og kynningastjórn

Alexía Björg Jóhannesdóttir

Smiðjur / fræðsla

Alexía Rós Gylfadóttir / Ýr Jóhannsdóttir

Aðstoð við handritsgerð / fræðsla

Guðbjörg R. Jóhannesdóttir

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo